Frjáls verslun - 01.03.1979, Qupperneq 66
byggd
Um helmingur húsa í
Vestmannaeyjum
verður tengdur hita-
veitunni á þessu ári.
Rætt við Gísla Guð-
laugsson, bæjarfull-
trúa, sem jafnframt er
framkvæmdastjóri
Verzlunar Gunnars
Ólafssonar & Co. h.f.
Verzlun Gunnars Ólafssonar & Co.
h.f. er eitt helzta og elzta verzlun-
arfyrirtækið í Vestmannaeyjum.
Það rekur matvöruverzlunina
Tangann í gömlu húsnæði við
Strandveg en hinum megin göt-
unnar eru skrifstofur og bús-
áhalda- og gjafaverzlun. Við Hóla-
götu er svo lítil matvöruverzlun í
útíbúi, sem fyrirtækið rekur enn-
fremur. Núna er hafin bygging á
nýrri stórverzlun, sem Gunnar
Ólafsson & Co. h.f. er að reisa við
Strandveginn. Er jarðhæðin upp-
steypt, um 800 fermetrar að flatar-
máli, en tvær efri hæðir hússins
um 650 fermetrar hvor. Er fyrir-
hugað að taka neðstu hæðina í
notkun á þessu ári en þar verður
meðal annars aðstaða fyrir báta-
verzlun fyrirtækisins, sem er mjög
mikil.
Að sögn Gísla Guðlaugssonar,
framkvæmdastjóra, þjónar verzlun
Gunnars Ólafssonar svo til öllum
bátaflota Vestmannaeyinga auk
loðnuskipanna, sem koma til Eyja
meðan vertíðin stendur yfir. Þá er
fyrirtækið með umboð fyrir Eim-
skipafélag fslands og fylgja því
miklar annir, enda er miklu afskip-
að af vörum með Eimskip í Vest-
mannaeyjum.
Bátaverzlunin svokallaöa geng-
Gísli Guðlaugsson. f baksýn er jarð-
hæð hins nýja þriggja hæða verzlunar-
og skrifstofuhúss, sem Gunnar Ólafs-
son & Co. h.f. reisir.
64
ur þannig fyrir sig, að bátarnir eru í
mánaðarreikningi með alla mat-
vöruúttekt en síðan hafa þeir
fimmtán daga frest til að greiða
reikninginn. Standi þeir ekki í skil-
um er lokað fyrir viðskipti við þá
20. dag mánaðarins. Þessi við-
skipti eru upp á hundruð milljóna á
ári.
Við spurðum Gísla, hvort þetta
væri erfið verzlun og sagði hann
að svo væri.
Þess vegna er vart grundvöllur til
að reka sérverzlun á þessu sviði
og eru nú uppi ráðagerðir um að
sameina búsáhöld og gjafavöru
nýju matvöruverzluninni, þegar
hún tekur til starfa í húsinu, sem
fyrirtækið er með í byggingu.
Gísli Guðlaugsson á sæti í bæj-
arstjórn Vestmannaeyja og þess
vegna beindum við til hans spurn-
ingum um helztu viðfangsefni,
sem nú væru á döfinni hjá bænum.
Þungt í vöfum
“Þetta er mjög þungt í vöfum.
Við erum búnir að borga stóran
hluta af vörunum, sem við endur-
seljum til bátanna, þegar þeir gera
upp við okkur. Þetta gildir t.d. um
mjólkina, sem við þurfum að borga
vikulega, og líka kjötið, sem á að
vera greitt 10. hvers mánaðar”,
sagði Gísli.
Búsáhaldaverzlunin og gjafa-
varan er líka erfið viðfangs, því að
hún er að mestu bundin við einn
mánuð ársins, desembermánuð.
Hitaveita og skipalyfta
efst á blaði
“Það eru hitaveita og skipalyft-
an, sem efst eru á blaði hjá okkur
núna”, svaraði Gísli. "Við höfum
orðið fyrir miklum vonbrigðum
með afstöðu ríkisvaldsins til lána-
fyrirgreiöslu vegna skipalyftunnar.
Nú vill ríkið líta á hana sem “ný
framkvæmd”, en þetta er lyfta sem
keypt var hingað árið 1972 og
unnið hefur verið að málinu síö-
an.”
Það þarf 500—600 milljónir til
Hraunhitaveitunni er spáð