Frjáls verslun - 01.03.1979, Qupperneq 67
að skapa aðstöðu, svo að hægt sé
að taka upp skip. Skipalyftan er
miðuð við um 500 tonna skip, 50
metra löng, hið stærsta en skut-
togarar þeirra í Eyjum eru af þeirri
stærö. Heildarframkvæmdir vegna
skipalyftunnar og alls, sem henni
fylgir, eru áætlaðar 2—3 milljarð-
ar. Skipalyftan býöur og til er þó
nokkuð af stáli til að þilja með en
fjármagnið vantar. Ef það væri fyrir
hendi hefði mátt áætla að fyrstu
skipin yrðu tekin upp á næsta ári.
Öll fjármagnsfyrirgreiðsla á þessu
ári var hins vegar skorin niður.
Helmingur húsa
tengdur hitaveitu í ár
Dælustöð fyrir hitaveituna er í
byggingu ofarlega í bænum og á
hún að þjóna allri byggðinni.
Verður lagður sérstakur strengur
til dælustöðvarinnar frá þeim stað,
þar sem rafstrengirnir koma á
land, og á það að auka öryggi í
dælingu þannig að hún geti haldið
áfram þótt einhver truflun verði á
rafmagnsdreifingu í bæjarkerfinu.
Nú mun láta nærri að 23% húsa í
Vestmannaeyjum séu tengd hita-
veitunni, sem eins og kunnugt er,
Hin nýja dælustöð hitaveitunnar
byggist á nýtingu varmans í nýja
hrauninu. Nýlega var samþykkt í
bæjarstjórninni aukaframlag til
hitaveituframkvæmdanna þannig
að það verður alls um 825 milljónir
á þessu ári af um 1500 milljónum,
sem hitaveitulagningin er talin
kosta fullgerð. Má gera ráð fyrir að
um helmingur húsa í bænum verði
tengdur hitaveitunni, þegar fram-
lag þessa árs hefur verið nýtt.
Verð á heitu vatni í Eyjum er 300
Þannig ættu allavega að vera eftir
10 ár. Það er hin opinbera spá, en
margir telja þó að líftíminn verði
miklu lengri. Nú er gufustreymið
sótt niður á 4—5 metra dýpi. Með
því að ýmis jaröefni setjast með
tímanum ofan á hraunyfirborðið er
talið að hitinn einangrist betur
niðri í hraunlaginu og hafa hinir
bjartsýnustu fyrir hönd hraunveit-
unnar gizkað á að endingin geti
orðið 20—30 ár.
allt að 20 - 30 ára endingu
kr. hver rúmmetri af vatni. Er það
um 75% af kostnaði við að kynda
upp með olíu miðað við olíuverðið í
janúar. Gert er ráð fyrir að húsin fái
80 gráða heitt vatn en skili því 40
gráða heitu til baka, þar sem þetta
er tvöfalt kerfi og lokað.
Við spurðum Gísla hverjar spár
manna væru um framtíó þessarar
hraunveitu, hve lengi menn gætu
treyst á hana til frambúðar.
Endingin 20—30 ár?
‘‘Það eru aðilar, sem hafa sterka
og mikla trú á þessu”, sagði Gísli.
“Svo eru aörir, sem halda því fram
að þetta sé ekki raunhæft.”
I hrauninu er talin fólgin orka,
sem sé 140-falt meiri en ársnotkun
hitaveitu fyrir allan Vestmanna-
eyjakaupstað, að því er vísinda-
menn halda fram. Það er talin vera
um 15 ára ending á orkunni en frá
því dragast fimm ár frá því að
þessar spár voru fyrst settar fram.
íbúafjöldi stendur í stað
Mikið hefur verið byggt af íbúð-
arhúsum í Eyjum að undanförnu,
einbýlishúsum, raðhúsum og fjöl-
býlishúsum. Nýlega var lokiö við
íbúðir í fjölbýlishúsum, sem bær-
inn hefur látið byggja samkvæmt
leigu-sölu ákvæðum. Verktakinn
byggði um leið nokkrar íbúðir, sem
hann hefur selt sjálfur. Mest er
eftirspurn hins vegar eftir lóðum
undir einbýlishús og hafa þær
yfirleitt verið fyrir hendi. Aðal-
skipulag bæjarins er að mestu leyti
komið í framkvæmd eftir gos en
útfærsla deiliskipulags er eftir í
nokkrum veigamiklum atriðum. í
austurbænum er verið að endur-
skoóa hugmyndir um nýjar einbýl-
ishúsalóðir en á næstu árum
verður alla vega hægt að byggja
þar yfir 100 einbýlishús. Þörfin fyrir
einbýlishúsalóðir er milli 20—30 í
Eyjum.
Fólksfjölgun er lítil sem engin í
Vestmannaeyjum og hefur íbúa-
fjöldinn stöðvazt við um 4400
manns, en fyrir gosið var hann
kominn upp í um 5300 manns.