Frjáls verslun - 01.03.1979, Blaðsíða 87
heildarviðskipti viðskiptamanns-
ins á árinu.
4. Viðskiptamannabókhald II.
Viðskiptamaður fær færsludag-
bók, reikningsyfirlit fyrir hvern við-
skiptamann sinn með vaxtaút-
reikningi og viðskiptamannalista
sbr. 3 hér að framan. Hér er hægt
að færa lagerbókhald um leið.
5. Launabókhald.
Viðskiptamaður fær launaseðil
fyrir hvern starfsmann, útskrift
launatékka eða bankalista, útskrift
skilagreina yfir allar tegundir
launafrádráttar og niðurstöður til
færslu fyrir fjárhagsbókhald.
6. Sambyggt viðskiptamanna- og
lagerbókhald.
Kerfi þetta er mun viðameira en
viöskiptamenn II og býður upp á
útskriftir á sölustatistik, framlegð-
arútreikningum hverrar vöruteg-
undar o.fl.
7. Byggingabókhald.
Þetta kerfi er til þess að fylgjast
með framvindu hvers konar bygg-
ingaframkvæmda, gera saman-
burð á kostnaðaráætlun og raun-
veruleika, fylgjast með pöntunum
og skuldbindingum sem þegar
hafa verið gerðar vegna verksins
o.þ.h. Kerfið er þegar í notkun við
eina meiriháttar byggingafram-
kvæmd hér á landi og hefur reynst
mjög vel.
8. Félagsgjalda- og áskrifenda-
bókhald.
Bókhald yfir innheimtu fyrir fé-
lagasamtök, blöð og tímarit t.d.
Hér er hægt aö skrifa út gíróseðla
og hverskonar tilkynningar til fé-
laga eða áskrifenda.
9. Gjaldendabókhald fyrir sveitar-
félög.
Bókhald yfir stöðu gjaldenda og
útskriftir álagningarseðla og
hverskonar tilkynningar til þeirra.
í öllum framangreindum verk-
efnum nema launum getur verið
um annað hvort að ræða að við-
skiptamenn okkar hafi sínar inn-
sláttarvélar fyrir „diskettur" eða
„kassettur" og við sjáum aðeins
um úrvinnsluna, eða að vinnslan
fari öll fram hér hjá okkur. Launin
vinnum við algjörlega hér.
F.V.: — Hversu mikið starfslið
hafið þið hjá Tölvumiðstöðinni?
Finnbjörn: — Við erum 6 sem
stendur en auk þess sér starfsliö
N. Manscher h.f. um allt skrif-
stofuhald fyrir okkur.
F.V.:— Eru allir viðskiptamenn
ykkar einnig viðskiptamenn end-
urskoðunarskrifstofunnar?
Finnbjörn: — Viðskipti viö okk-
ur eru ekki á neinn hátt háð við-
skiptum við hana, enda þótt margir
viðskiptamanna okkar skipti líka
við endurskoðunarskrifstofuna.
F.V.: — Getur endurskoðunar-
skrifstofan á einhvern hátt notfært
sér þekkingu ykkar og vélakost í
þágu endurskoðunarstarfa?
Finnbjörn: — Eftir því sem fyr-
irtækjum og stofnunum sem nota
tölvur fjölgar, hlýtur þessi spurn-
ing að verða meira brennandi.
Endurskoðendum hlýtur að vera
nauðsynlegt í sambandi við starf
sitt, að fá á því nákvæma lýsingu
hvernig starfandi tölvukerfi virka,
þar sem þeir endurskoða. Þegar
það liggur fyrir þurfa þeir í mörg-
um tilfellum að búa sér til forrit til
þess að komast inn í þessi kerfi og
sannreyna að þau virki eins og
fyrir þá er lagt. Svona eru bók-
haldsskráningarkerfi sannreynd
víða erlendis nú þegar og ég
reikna með svona verkefnum upp
á borðið hjá okkur innan tíðar fyrir
endurskoöendur, bæði N.
Manscher h.f. og aðra.
F.V.: — Hvað með framtíðina,
verður tölvan forstjóri framtíðar-
innar?
Finnbjörn: — Nei, tölvur eru
frábær hjálpartæki viö stjórnun ef
rétt er að málum staðið, en mér
sýnist vandséð hvernig þær geti
unnið flóknari verkefni en þau sem
maðurinn setur inn í þær. For-
stjórar þurfa því væntanlega ekki
að stofna verkalýðsfélag af þessari
ástæðu.
Um framtíðina er annars það
helst að segja, að tækninni fleygir
stöðugt fram, tölvur verða smærri
og meðfærilegri og verð viðráö-
anlegra. Sá þáttur sem mönnum
hættir hvað mest til að vanmeta,
þegar þeir taka tölvu í þjónustu
sína, er sú tækniþekking sem
nauðsynlegt er að sé til staðar í
fyrirtækjum, sem reka sínar eigin
tölvur.
Verzlunin
HEIMAVER
Vestmanna-
eyjum
Kjöt og
nýlenduvörur
Verið velkomin
Kvöldsala
frá 6—10
Verzlunin
HEIMAVER
Hólagötu 40
Sími 1707
85