Frjáls verslun - 01.03.1979, Síða 98
Gísli ásamt konu slnnl Lenu M. Rlst og einni dótturlnnl.
tímarit sem hestamenn gefa út.
Hann er aðili að Kaupstefnunni hf.
og kvikmyndagerðinni Sýn, sem
rekin er í tengslum við Auglýs-
ingastofuna. Hann tekur þátt í
ýmsu félagsstarfi m.a. í íþrótta-
deild Fáks, sem gengist hefur fyrir
mótum, fræðslufundum og
skemmtunum, og á vori komanda
verður m.a. haldið íþróttamót á
vegum deildarinnar.
... ég var dæmigerður bor-
garbúi...
— Áhugi minn á hestum vakn-
aði, þegar ég var í sveit 10—15 ára
gamall á Torfastöðum í Fljótshlíð,
en samtalið hófst á því að spyrja,
hvernig þetta hefði hafist, og hve-
nær Gísli heföi eignast fyrsta
hestinn.
— Svo var það fyrir rúmum átta
árum, að ég eignaðist fyrsta hest-
inn, Geisla, sem er af Eiríksstaöa-
kyni. Fengur, faðir Sörla, var afi
Geisla. Pétur Behrens kunningi
minn, tamningamaður og teiknari,
sem hefur oft unnið hjá mér á
vetrum, var alltaf að hvetja mig til
þess að fara að stunda hesta-
mennsku. Hann sagði, að ég væri
dæmigeröur borgarbúi, sem
sökkti mér niður við teikniborðið,
og sinnti engu öðru en viðskipt-
unum. Ég skaut því alltaf á frest að
gera alvöru úr þessu, fannst ég of
önnum kafinn, skuldaði mikið og
þar fram eftir götunum.
— Rétt fyrir jólin (þetta var
1970), hringir Pétur í mig norðan
úr landi, og segist hafa keypt
handa mér hest, að mér forspurð-
um, og nú skyldi reyna á, hvort
áhugi minn á hestamennsku væri
raunverulega fyrir hendi. Hann
skyldi taka að sér að temja hest-
inn, en ég yrði að senda greiðslu
strax. Ég sendi ávísun á bóndann
þarna norður í Húnavatnssýslu, og
þannig hófst þetta.
Geisla á Gísli enn. Hann er hvít-
ur 13 vetra, geysilega viljamikill og
fjörugur. Er hann mest nú notaður
á sumrin, þar sem hesturinn unir
sér ekki í hesthúsunum í Víðidal,
og gengur því úti ásamt öðrum
hrossum á jöröinni fyrir austan, en
þar er hann í sínu rétta umhverfi.
Eins og lækning að
stunda hestamennsku
Fjölskylda Gísla, kona hans
Lena og dæturnar fjórar, taka
mikinn þátt í hestamennskunni.
Lena hefur verið með Gísla frá
upphafi, og dæturnar þegar þeirra
tími leyfir, enda sagði Gísli, að í
sínum augum væri grundvallarat-
riði, að fjölskyldan geti átt sam-
eiginlegar tómstundir.
Fyrsti hestur Lenu heitir Skuggi.
Hann er nú á tólfta vetri. — Skuggi
er mikill gæðingur, sagði Gísli.
Þegar hún eignaðist hann var
hann frekar lítill og horaður og
þvældist eiginlega fyrir tamninga-
mönnum á hlaöinu heima á Hvít-
árbakka, þaðan sem hann kom.
Árið 1976 varð Skuggi efstur al-
hliða gæðinga hjá Fáki. Á fjórð-
ungsmóti hestamanna á Hellu á
Rangárvöllum, 1976 varð hann í
öðru sæti í flokki alhliða gæðinga,
og á landsmóti hestamanna á
Skógarhólum á síðasta sumri varð
hann í 18. sæti. Skuggi hefur verið
með einkunnir frá 8.38—8.68 í
flokki alhliða gæðinga.
— Ég setti mér sem mark aö
vera ekki eftirbátur Lenu um
hestaeigu, sagði Gísli. Hann á
einnig hest, sem hefur orðið efstur
í flokki alhliða gæðinga, og heitir
ögri. Ögri og Skuggi eru báðir af
mjög þekktum stofni, Horna-
fjarðarstofni. Ég hef verið í góðum
tengslum við hestamenn og tamn-
ingamenn, sem hafa valið hesta
fyrir mig og meö mér, sérstaklega
þeir Reynir Aðalsteinsson, Ragnar
Hinriksson og Pétur Behrens.
Gísli á nú hlut í hesthúsi í Víði-
dal, en þar hefur hann haft hest-
ana frá því að hann fór að stunda
hestamennsku. Hann ásamt öðr-
um hestaeigendum í húsinu skipt-
ast á um að hirða hrossin og gefa
j þeim.
— Maður kemst í meira sam-
, band við hestana þannig, sagði
] Gísli. Þeir heilsa manni með
hneggi, þegar maður kemur aö
gefa þeim, og verða vinir manns.
Allar helgar nota þau Gísli og
Lena til að sinna hestunum sínum,
fara í útreiðartúra og hirða um þá,
en auk þess fer Gísli upp í hesthús
á virkum dögum, jafnvel tvisvar til
þrisvar í viku, til þess að gefa
hestunum.
— Það verkar eins og lækning
aö stunda hestamennskuna, sagði
Gísli. — Hestamenn eru ekki í
vandræðum með sínar tómstund-
ir. í fyrsta lagi hefur maður eitthvað
fyrir stafni, og í öðru lagi styrkir
hún mann líkamlega og andlega.
Þessu fylgir mikil útivera, maður
puðar mikið og upplifir svo margt,
ekki síst náttúruna bæði vetur og
sumar.
94