Frjáls verslun - 01.08.1979, Side 18
innlent
Þorbjörg auglýsingastjóri: „Stjórn-
málin erfiðust viðfangs."
Núverandi auglýsingareglur eru
síðan 1. mars 1976. í fyrstu grein er
fjallað um að auglýsingar skuli
vera „látlaust orðaöar, lausar við
skrum og hæpnar fullyrðing-
ar. . .“. í annarri grein erfjallað um
að auglýsingar skuli aðeins lesnar
á ákveðnum tímum, nema um
auglýsingar frá Ríkisútvarpinu sé
að ræða eða neyðartilkynningar.
Auglýsingaverð
í þriðju grein er fjallað um gjald
fyrir auglýsingar, en ráðherra
ákveður það að fengnum tillögum
útvarpsstjóra og útvarpsráðs.
Gjald fyrir auglýsingar er mælt í
oröum og kostar orðið 470 krónur í
morguntíma og miðdegistíma. í
hádegisútvarpi og fyrir kvöldfréttir
kostar orðið 550 krónur og í tím-
anum eftir kvöldfréttir kostar orðið
1.100 krónur. Talið er eðlilegt að
þulur lesi um hundrað orð á mín-
útu og er því verð á mínútu í þess-
um tíma nærri því sem er í sjón-
varpi. Nokkru getur þó munað á
lestrarhraða, eftir eðli auglýsing-
anna og hver þulur er.
Sennilega er engin auglýsingastofnun í víöri veröld,
sem þarf að fylgja jafn ströngum og flóknum reglum
og auglýsingadeild útvarpsins. Um störf hennar gilda
reglur, sem útvarpsstjóri setur, en auk þess hefur út-
varpsráð afskipti af störfum hennar og loks koma oft
fyrir vafaatriði, sem skera verður úr, dag frá degi. Að
auki skapast hefðir um rekstur hennar, sem móta
starfsemina.
í fjórðu grein er fjallað um
ábyrgð auglýsenda á auglýsingum
sínum.
í fimmtu grein er fjallað um
ýmsar takmarkanir, sem auglýs-
endum eru settar. Þar segir að
reynt skuli að haga efni þeirra og
lengd eftir óskum auglýsenda en
þeim skuli hafnað af nokkrum
ástæðum. í 1. lið greinarinnar
segir að það skuli gert ef þær
brjóta í bága við lög.
Ádeila og hlutdrægni
I öðrum lið 5. greinar kemur að
þeim atriðum, sem oft er erfiðast
að fást við. Hann hljómar þannig:
,,Ef auglýsing (eða heiti auglýs-
anda) er mengaö ádeilu eða hlut-
drægniumsögn um stjórnmála-
flokka, stefnur í almennum málum,
félagsheildir, stofnanir eða ein-
staka menn . . .“
Þorbjörg Guðmundsdóttir, aug-
lýsingastjóri segir meðal annars:
„Erfiðast af öllu er að skera úr
málum, sem snerta stjórnmál.
Stjórnmálamenn hafa annað mat á
sínum málefnum en við og telja
það yfirleitt pólitíska andstöðu við
sig, ef ekki má birta tiltekna aug-
lýsingu".
Sem dæmi má taka að það var ekki
talið eðlilegt að auglýsa grein í
Þjóðviljanum, með fyrirsögninni
„Sigurður vill ryðja öllu í burtu,
í
Flóknar ri
18