Frjáls verslun - 01.08.1979, Side 25
seðlaprentun og að menn viti það
og trúi því.
Menn verða líka að skilja það, að
þeir koma ekki í veg fyrir atvinnu-
leysi, þegar til lengdar lætur, með
því að halda verðbólgu áfram.
Valið er ekki raunverulega um
verðbólgu og fulla atvinnu annars
vegar og stöðugt verðlag og at-
vinnuleysi hinsvegar. Undirrót at-
vinnuleysis er, að maður gerir sér
rangar hugmyndir um verð vinnu-
afls síns: hann kýs heldur að
ganga um atvinnulaus en taka til-
boði um atvinnu á lágu verði".
Er séreignarskipulagið, sem þú
styður, ekki skipulag hinnar
grimmu samkeppni?
„Öðru nær. Séreignarkerfið er í
rauninni mildilegra og friðsam-
legra en sameignarkerfið vegna
samkeppninnar og hinna frjálsu
viðskipta. Þinn gróði er ekki mitt
tap, því að þú þarft ekki að skipta
viö mig, nema þú sjáir þér hag í
því. Auðvitað eru til undantekn-
ingar, en þær eru ekki röksemdir
gegn þessu lögmáli. Kjarni máls-
ins er, að ég legg harðar að mér í
séreignarkerfinu, ef ég ætla að
bæta kjör mín. En í sameignarkerfi
er allt í einum sjóð eða einni köku,
og henni á að skipta, svo að allir
eru óvinir, ég fæ minna af kökunni,
ef þú færð meira. Þessi er munur-
inn á skiptingu ríkisins og vió-
skiptum á markaði. Þessi skipting
kökunnar veldur eilífri óánægju og
ófriöi.
Valfrelsið léttir þrýstingi af í
þjóðlífinu, ef svo má segja. Við
getum tekió samskipti kynþátt-
anna f Bandaríkjunum til dæmis.
Þaö kemur hvíta manninum ekki
við, þó að svarti maóurinn kaupi
bifreið sömu geróar og hann á. En
hann verður æfur — ef hann er
ófullkominn og hleypidómafullur
eins og flestir menn eru — þegar
svarti maðurinn sendir börnin sín í
sömu skólana og börnin hans
sækja. Bifreiðarnar eru seldar á
markaði en ekki skólagangan.
Raunveruleg átök verða til, þegar
almennar ákvarðanir ríkisins taka
við af einstökum ákvörðunum ein-
staklinganna á markaðnum, með
öðrum orðum, þegar skipting tek-
ur við af frjálsum viðskiptum og
raunverulegri verðmætasköpun.
Einkaframtaksmenn skipta ekki
kökunni, heldur baka hana“.
FYLGIST MEÐ
EFNAHAGSMÁLUM
í HAGTÖLUM MÁNAÐARINS birtast töflur um:
• PENINGAMÁL
• GREIÐSLUJÖFNUÐ
• UTANRÍKISVIÐSKIPTI
• RIKISFJÁRMÁL
• FRAMLEIÐSLU OG
FJÁRFESTINGU
og fleira.
Gerist áskrifendur.
Hagfræðideild
Hafnarstrætí 10-12.
-tktx&P Sími 20500.
25