Frjáls verslun - 01.08.1979, Síða 76
Esjuberg er staðsett að
Suðurlandsbraut 2 eða
nánar tiltekið í Hótel Esju.
Fullyrða má að staðurinn sé
einn vinsælasti matsölu-
staður í Reykjavík og hefur
verið það allt frá stofnun
hans, 15. október, 1975. Að
sögn Ragnars Lárussonar,
yfirmatsveins, starfa um 50
manns á Esjubergi yfir há-
annatímann, á sumrum, en
nokkru færri á veturna.
Á boðstólum eru grillréttir
og buffsteikur og fleira í
þeim dúr og einnig kökur og
smurt þrauð, fyrir utan sér-
stakan morgunmat. Þá er
daglega boðið upp á rétti
dagsins en þeir eru á verð-
inu 2—3000 krónur. Þá er
framreiddur veislumatur á 2.
hæð en þar eru salir leigðir
út til fundar- og veisluhalda.
,,Þarna getur fólk fengið
góða dinnera" sagði Ragn-
ar. Loks er Skálafell, sem er
bar á efstu hæö hótelsins, í
umsjá eldhússins niðri,
hvað varðar smurt brauð og
forrétti ýmiskonar.
Viðskiptavinir á Esju-
bergi?: ,,Það er t.a.m. fólk
sem kemur í hádeginu úr
vinnunni, skrifstofufólk og
erlendir gestir. Nú, síðan al-
menningur ef svo má segja,
t.d. fjölskyldufólk, utanbæj-
arfólk, sem aðallega kemur
þó á veturna, og síöan hóp-
ar úr öllum áttum. Annars er
ekki hægt að telja svona
upp, því að viðskiptavinir
okkar eru það margvísleg-
ir."
Ragnar taldi sérstöðu
Esjubergs vera: Nr. 1 hröð
afgreiðsla og góður matur.
Þá væri salurinn mjög góður
en hann tekur um 240
manns og umhverfið
skemmtilegt. Létt vín standa
gestum til boða með matn-
um.
Esjuberg
i
Hamborgarar
á færíbandí
Þú bíður ekki meðan við steikjum
borgarann þinn.
Hann bíður þín fullsteiktur, heitur og ilmandi
og þú borðar á staðnum eða þínum stað.
Þess vegna: Skyndibitastaður
BORGARINN SKYNDIBITASTAÐUR LÆK JARTORGI
BORQflRINN
•.F.Tll.'ÍBHÁ'tlfeM !i-