Frjáls verslun - 01.01.1980, Síða 17
leið við Finnland. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær samband-
inu verður náð við Bretland, en ég
held að það dragist ekki lengur en
til áramótanna. Síðast munum við
ná sambandi við Osló, það verður
ekki fyrr en 1982, en Danmörk
verður nokkuð fyrr."
— Hvað verður með sæstrenq-
inn?
,,Samkvæmt samningnum við
Stóra norræna verðum við að nýta
strenginn fram til ársins 1985, og
nota áfram með honum 25 rásir.
Hvað síðan tekur við veit ég ekki.
Ég efast um að félagið láti taka
strenginn uþþ, kannski fáum við
hann fyrir lítið, en hvort það borgi
sig að halda honum við veit ég
ekki.
Það hefur verið ákveðið að
telexið og ritsíminn verði áfram í
strengnum.
Beint sjónvarp?
— Á jarðstöðin ekki aö geta
annað sjónvarpssendingum á milli
landa?
„Jú, það getur hún. Sending og
móttaka sjónvarpsefnis verður
möguleg, en þó ekki beint til not-
enda. Til sjónvarpssendinga þarf
aðeins að vera fyrir hendi beiðni
frá sjónvarþsstöðvum. íslenska
sjónvarpið spurðist fyrir um
möguleikana, en síöan hefur ekk-
ert heyrst frá þeim.“
— Gætum við séð Olymþíuleik-
ana í sjónvarpinu í beinni útsend-
ingu?
,,Ég held að ekkert ætti að vera
því til fyrirstöðu, tæknilega séð.
Sendingin verður hvort sem er í
loftinu og þá er ódýrara fyrir ís-
lenska sjónvarþið að ná henni, því
ef margar þjóðir eru saman um að
ná geislanum því ódýrara verður
það."
— Hvað mun síðan kosta að
hringja beint til útlanda?
,,Það verða sömu gjöld og með
strengnum býst ég við. Okkur
sýnist að eftir tvö til þrjú ár, með
réttri aukningu símtala, þá fari
stöðin að skila hagnaði og eflaust
verður rétt að láta notendur njóta
hans að einhverju leyti og þá með