Frjáls verslun - 01.01.1980, Page 25
að hringja bjöllunni til þess að komast inn. Eitthvert
blaðið gerði svo grín að þessu og sagði að Stein-
grímur hefði komið að læstum dyrum á Bessastöð-
um!“
— Er forsetastarfið tímafrekt starf?
,,Stundum er mjög mikið að gera, en það er þó
mismunandi. Ég hef t.d. aldrei tekið mér sumarfrí á
meðan ég hef gegnt þessu embætti. Meðan ég var
þjóðminjavörður tók ég mér ekki heldur frí síðustu
árin, þannig að við vitum varla hvað sumarfrí er.
Nú, það koma fyrir rólegri tímar í starfinu og þá er
yfirleitt nóg fyrir mig að gera í mínu fagi. Oftast er þó
eitthvað um að vera, þó það sé ekki annað en undir-
búningur undir móttökur, ferðir eða þá, að maður er
að skrifa ræður fyrir ýmis tækifæri."
Flytur að Staðarstað
— Hvað á forseti að sitja lengi á forsetastól? í ný-
ársræðu þinni sagðir þú að tólf ár væri hæfilegur tími.
,,Vfst sagði ég það, vegna þess að mér þykir heldur
ólíklegt að forseti verði yfirleitt lengur en 12 ár í em-
bættinu, en ég er ekki á þeirri skoðun að þetta ætti að
vera föst regla. Menn geta verið skemur, jafnvel
lengur. Einn forseti í l’srael var prófessor í eðlisfræði.
Hann sat einungis eitt kjörtímabil á þingi og hvarf þá
aftur til háskóla síns og tók upp kennslu og rann-
sóknir á ný.“
— Munt þú flytja á Sóleyjargötuna?
,,Já, ég geri ráð fyrir því. Við keyptum þar húsið
Staðarstað þar sem börn okkar búa núna.“
Vinir sem ráðgjafar.
— Þegar þú tókst við þessu embætti, þá varst þú
mjög ókunnur þeim siðum og störfum sem fylgdu því.
Hvert leitaðir þú í smiðju um ráðgjöf?
,,Það voru nú aðallega góðir vinir mínir úr emþætt-
ismannastétt sem hafa aðstoðað mig, þegar mér hef-
ur fundist ég þurfa að ráðgast við einhvern. Þessum
mönnum treysti ég til að ráða mér heilt. Einnig hafa
stjórnmálamenn verið mér innan handar."
Eftirminnilegir atburðir
— Að lokum Kristján. Hvaða atburðir eru þér nú
eftirminnilegastir frá þinni forsetatíð?
,,Það er nú af mörgu að taka. Stjórnarmyndanirnar
hafa alltaf verið nokkuð sérstakar. Það er eftirminni-
legt að sitja á tveimur ríkisráðsfundum sama daginn.
Fyrst er það kveðjufundur með gömlu ráðherrunum
og síðan fyrsti fundurinn með nýju ráðuneyti.
Utanlandsferðirnar eru nokkuð eftirminnilegar,
ekki síst þær fyrstu. Nú það var ákaflega eftirminnilegt
þegar Pompidou og Nixon komu hingað til lands á
fund. Sá atburður var ævintýri líkastur, nokkurs konar
uppákoma, hann varð með svo litlum fyrirvara.
Tveir sorglegir atburðir koma hér upp í huga minn.
Tvisvar hef ég verið vakinn snemma morguns og mér
tjáóar sorgarfréttir. í fyrra skiptið var mér tjáð að
Bjarni Benediktsson, kona hans og dóttursonur
hefðu látist í eldsvoða á Þingvöllum. Nokkrum árum
síðar varð eldgosið á Heimaey.
Gleðistundir hafa sem betur fer verið margar. Ég
held ég gleymi seint morgninum hinn 28. júlí 1974,
þjóðhátíðardaginn. Ég held ég hafi aldrei fengið betra
veður á Þingvöllum."
Kristján Eldjárn: — „Mér þykir heldur ólíklegt að
forseti verði lengur en 12 ár í embættinu.“
25