Frjáls verslun - 01.01.1980, Page 47
Erlendir heildsalar landfastir hér?
Skrifstofa Félags ísl. stórkaupmanna hefur oft á undanförnum árum vakið athygli lögreglu-
stjóra á því að erlendir heildsalar starfa hér án þess að hafa innlenda umboðsmenn. Hefur
skrifstofa félagsins hvatt félagsmenn til að tilkynna um þessa farandheildsala til yfirvalda,
þegar vart verður við þá, og er það gert með vísun til laga um verzlunaratvinnu, þar sem tekið
er fram í 3. gr. að óheimilt sé að reka verzlun á Islandi eða í íslenzkri landhelgi, (þar á meðal
heildverzlun), nema til komi leyfi samkvæmt lögunum. í 4. gr. er svo tekið fram sem skilyrði
fyrir verzlunarleyfi, að einstaklingur, sem leyfis óskar hafi íslenzkt ríkisfang og sé heimilis-
fastur á íslandi.
Nú að undanförnu hefur það
verið mikið rætt í félagi stórkaup-
manna, að sífellt fari í vöxt að er-
lendir heildsalar eöa útsendarar
þeirra starfi hér á landi. Virðist
þetta mest aukast í vefnaðarvöru-
verzlun. Kveður svo rammt að
þessu aö hér munu starfa sölu-
menn frá sumum hinna erlendu
fyrirtækja mestan hluta ársins.
Vefnaðarvöruinnflytjendur hafa
rætt þetta vandamál sérstaklega
og Félag ísl. stórkaupmanna vakið
athygli á því viö yfirvöld og vill
reyna að koma fram breytingum.
Stórkaupmenn benda á, að helzta
ástæðan fyrir því að þessi starf-
semi þrífst hér á landi séu hin úr-
eltu verðlagsákvæði sem verzlun-
in býr við.
Það hefur tíðkazt um langt árabil
að sölumenn frá erlendum fyrir-
tækjum séu hér á ferðinni. Hins
vegar er stór munur á því hvort
þeir koma til viðræðna við um-
boðsmenn sína hérlendis, til að
veita upplýsingar og þjónustu, eða
hvort þetta eru aðilar, sem koma
hingað á eigin vegum, hafa hér
enga starfsstöð og engan um-
boðsmann eða í bezta falli ein-
hvern einstakling að benda á, sem
Fgl..-.r:r. i ■■-rrtrrrr.',»•
Mr reka starfsemi sfna aðallega út frá hótelherbergjunum.
47