Frjáls verslun - 01.03.1981, Síða 6
Togari verður
togskip
„We’re the Pepsi genera-
tion“.
Fella- og Hólahverfi er
stundað meira Pepsi-þamb
en dæmi munu vera um á
sambærilegum samkomum.
Um leið og virðulegir fram-
sögumenn eins og Albert
Pepsi-auglýsingum og ekki
gefið snjöllustu auglýsinga-
sérfræðingum í Amríkunni
neitt eftir.
Þannig var það í upphafi
fundar með Albert
Guðmundssyni að formað-
urinn tilkynnti sérstaklega,
að fyrirtækin Pólarís og
Sanitas hefðu verið svo
elskuleg að bjóða fundar-
mönnum ókeypis drykkjar-
föng. Síðan tók frummæl-
andinn Albert Guðmunds-
son til máls og óskaði í lok
ræðu sinnar eftir fyrirspurn-
um úr sal.
Þá greip formaðurinn aft-
ur inn í með stutt innskot:
„Það eru fyrirtækin Pólarís
og Sanitas, sem bjóða okkur
ókeypis Pepsi. Ég vil vekja
athygli fundarmanna á því,
að Pepsi Cola er meðal 57
stærstu fyrirtækja í Banda-
ríkjunum. Er þrem sætum
fyrir ofan Coke."
flokksfundum
Nú þykir ekki lengur fínt
að gera út skuttogara á (s-
landi, enda eru togarakaup
ein sú mesta skömm, sem
menn geta lent í. Allt það
moldviðri, sem þyrlast upp í
hvert sinn, sem togarakaup
ber á góma hefur nú orðið til
þess að snillingar hafa
fundið nýtt heiti á þessi
veiðitæki og kalla þau tog-
veiðiskip. Við slíku skipi
verður tæpast amast. Minnir
feluleikurinn á tilburði
stjórnmálamanna við að
finna nafnleysur á fyrir-
brigðió gengisfellingu.
Samkvæmt reglunni
mega skuttogarar, sem eru
lengri en 39 metrar ekki toga
í innan við 12 mílna fjarlægð
frá landi. Togarar, sem eru
styttri en 39 metrar mega
hins vegar toga inn að fjór-
um mílum og er tískan sú að
kalla þá togveiðiskip —
nema þeir séu styttri en 26
metrar. Þá mega þeir toga
inn að þrem mílum og heita
þá um leið togbátar.
Samkvæmt þessu mun
t.d. Vestfjarðaskuttogarinn
Júlíus Hafstein ekki lengur
heita skuttogari heldur tog-
skip. En tilgangurinn helgar
meðalið enda amast fáir við
hugmyndum íbúa á Djúpa-
vogi og Patreksfirði um
kaup á togskipum til lands-
ins. Menn tengja ekki einu
sinni fjölgun skrapdaga
þessu nýja nafni.
Pepsi á
Það hefur ekki farið framhjá
neinum að feiknalegt sölu-
stríð geisar nú á innan-
landsmarkaði milli Pepsi
Cola og Coke. Hefur það
tekið á sig ýmsar og allný-
stárlegar myndir miðað við
hefðbundnar kynningar- og
söluaðferðir, sem íslending-
ar hafa hingað til átt að
venjast. Þannig hefur það
vakið athygli, að á félags-
fundum Sjálfstæðismanna í
Guðmundsson og Gunnar
Thoroddsen hafa verið aug-
lýstir í fundarboði félagsins
á síðum Morgunblaðsins
hefur þess verið getið sér-
staklega að ókeypis Pepsi
yrði á boðstólum.
Fólk sem sótt hefur þessa
fundi í Breiðholtinu, hefur
skemmt sér konunglega yfir
þessari nýjung. Formaður
félagsins hefur sem fundar-
stjóri skotið inn sérstökum
Nú fékk Albert aftur orðið
og svaraði fyrirspurnum.
Um miðbik fundarins sté
formaðurinn enn á ný í
ræðustól og flutti þá þennan
boðskap: „Það eru fyrirtæk-
in Pólarís og Sanitas, sem
bjóða upp á ókeypis Pepsi.
Þið vitið sennilega ekki að
Pepsi hefur nú meiri dreif-
ingu en Coke í 30 þjóðlönd-
um heims. Og nú tekur
Albert aftur til máls."
Bjór um bakdyrnar
Það er segin saga að
þegar höfðingjar reyna að
setja hömlur á okkur hin
finnum við alltaf leið út úr
búrinu. Bjórnum hefur nú
verið haldið frá okkur um
áratuga skeið en þeir þyrst-
ustu fundu þó um síðir út að
laganna hönd gat ekki
bannað þeim að útbúa eig-
inn bjór heima í eldhúsi.
Veitingahúsin hafa nú
fundið sína leið undan bjór-
hömlunum. Að minnsta
kosti hefur það vakið athygli
þeirra, sem þessa dálka
skrifa að í einu diskóteki
borgarinnar, Óðali, bergja
flestir gestanna drykk sinn
úr bjórkönnum og freyðir
innihaldið líkt og alvöru bjór.
Reyndar biðja flestir um bjór
á barnum þó að hið opin-
bera heiti hússins á þessum
drykk sé Óóalsmjöður.
Um innihald drykksins
hefur Frjáls verzlun ekki ná-
kvæmar upplýsingar en
uppistaða hans mun vera
pilsner og kláravín. Styrk-
leikinn er um 5%.
Fleiri veitingastaðir eru
farnir að framreiða þennan
kreppubjór, og er honum
víðast dælt úr tunnum í
könnur gestanna líkt og al-
vörubjór. Er haft fyrir satt að
gestir þessara húsa gangi
þaðan mun styrkari fótum
en veitingahúsgestir hafa
gert á (slandi í mörg ár.
6