Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 8

Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 8
I FRETTUMLJIVI „Vigdís er á viö 10% gengis- lækkun“ Orri Vigfússon, forstjóri í Glit, segir að í útflutningi á iðnaðarvörum sé Vigdís Finnbogadóttir á við 10% gengislækkun. Hann sagði þetta eftir heimsókn Vigdís- ar til Danmerkur, sem mikið orð hefur fariö af. Eftirspurn eftir vörum frá Glit hefur vaxið stórlega og nú berast viðstööulausar fyrirspurnir frá Noregi, eftir að þaó fréttist aö von væri á Vigdísi þangað. Iðnrekendur hafa lengi haldið því fram að gengi krónunnar væri að staðaldri miðað við sjávarútveg og væri því iðnaðinum óhag- stætt. það hefur komið flestum á óvart hversu mikil áhrif heimsókn Vigdísar til Danmerkur hefur haft og kosning hennar virðist hafa haft meiri áhrif víðsvegar um heim, en menn áttu von á hér heima. Orri hyggur gott til þess að notfæra sér frægð og vinsældir Vigdísar á Norðurlöndum, enda er hann núna að kynna nýju línu, Steinblóm, sem þegar hefur fengið mjög góðar undirtektir, þar sem hún hefur verið sýnd erlendis. Fjögurra daga vinnuvika Eins og komið hefur fram í Frjálsri verzlun, tók Gunnar Kjartansson nýlega við starfi framkvæmdastjóra Heklu á Akureyri. Eitt af fyrstu vandamálunum, sem beið úrlausnar hins nýja fram- kvæmdastjóra var mikil uppsöfnun birgða, sem orsakaðist af því að meira var framleitt en selt. í stað þessaðdraga úrframleiðslu með því að fækka mann- skap tók Gunnar það til bragös að stytta vinnuvik- una og gengur verksmiðjan nú fjóra daga í viku. Halda allir vinnunni, en lækka lík- lega í launum um 20%. Bergþór segir upp Bergþór Konráðsson, hefur sagt upp starfi sínu. sem um árabil hefur verið Hvað Bergþór tekur sér fyrir aðstoðarframkvæmdastjóri hendur er ekki afráðið, en Iðnaðardeildar Sambands- ekki er ólíklegt að hann flytji ins en eftir skipulags- sig um set innan Sam- breytingar, fjármálastjóri, bandsins. Farandi, ný feröa- skrifstofa Haraldur Jóhannsson, sem margir þekkja af störfum hans hjá Flugfélagi (slands og síðar Flugleiðum, hefur stofnað ferðaskrifstofu, sem starfar að Lækjargötu 6A í Reykjavík. Hann ætlar að leggja aðaláherslu á að sinna þörfum þeirra ein- staklinga, sem vilja ferðast á eigin spýtur, frekar en í hópum. Haraldurer víðförull maður og hyggst nota þá lífsreynslu sína í þessari starfsemi. Þá hyggst hann einbeita sér að móttöku er- lendra ferðamanna á (s- landi, bæði einstaklinga, sem ferðast sjálfstætt og einnig hópa. Hann ætlar að taka upp þá nýjung að bjóða fyrirtækjum og stofnunum að fara með erlenda gesti þeirra í lengri eóa skemmri ferðir, innan Reykjavíkur eða utan, meö reyndu og vel menntuðu leiðsögufólki. Þannig geta stjórnendur losnað við slíkar ferðir, sem oft eru þeim erfiðar vegna tímaskorts. Haraldur Jóhannsson er meðal reyndustu manna í ferða- málum á (slandi. Hann starfaði í fjölda ára á sölu- skrifstofu Flugfélags (slands og var síðan sölufulltrúi um fimm ára skeið, þar til hann lét af störfum hjá Flugleiðum fyrir tæpum þremur árum. Eftir það starfaði hann hér á landi fyrir svissneska ferða- skrifstofu, ferðaðist um Austurlönd í sex mánuði og tók til starfa hjá ferðaskrif- stofunni Útivist í fyrravor. 8

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.