Frjáls verslun - 01.03.1981, Side 9
Nýr framkvæmdastjóri
Bandag
Hinn 1. mars tók Gunnar
Birgisson viö stööu fram-
kvæmdastjóra Bandag h.f.
af Guðmundi Gunnlaugs-
syni. Gunnar er 26 ára gam-
all og aö skólagöngu lokinni
starfaði hann sem skrif-
stofustjóri hjá Böðvari S.
Bjarnasyni s/f byggingar-
verktaka. j samtali viö
Frjálsa verslun sagði Gunn-
ar að þessi tvö störf væru
mjög ólík; hjá Böðvari hefði
verið unnió í tilboðsverkum
en þetta væri þjónustustarf-
semi. Gunnar sér um alla
sölu og innflutning á hjól-
börðum hjá Bandag, en
hefur auk þess yfirumsjón
með öllu starfsfólki. Að-
spurður sagði hann að
starfsandinn væri góður, og
starfið legðist vel í sig, —
hann væri alveg rólegur yfir
þessu öllu, þótt ungur sé að
árum.
Innkaupastjori a Alþingi
Starfsmenn Alþingis hafa
að undanförnu orðið varir
við eilíft rennerí sölumanna
tækja og búnaðar fyrir sjáv-
arútveg um þingsali. Þessir
sölumenn leita öðrum frem-
ur upþi Stefán Valgeirsson,
þingmann Framsóknar úr
Norðurlandi eystra vegna
sölu á útgerðar- og fisk-
vinnsluvörum fyrir Þórs-
höfn. Telja sölumennirnir
tilgangslaust að ræða beint
við forsvarsmenn sjávarút-
vegs á Þórshöfn enda munu
þeir valdalitlir um eigin
rekstur. Stefán Valgeirsson
tekur sölumönnum hins
vegar betur og hefur þegar
gert veruleg innkaup fyrir
hönd þeirra Þórshafnarbúa.
Sölustjóri
hjá Vökli
Nýr sölustjóri hjá Vökli h.f.
er Hilmir Elísson, en hann
tók við því starfi af Snjólfi
Pálmasyni. Hilmir er fæddur
í Reykjavík 28.9. 1944 og
lauk prófi frá Hótel- og veit-
ingaskóla íslands árið 1969.
Við framreiðslustörf starfaði
Hilmir í 12 ár; á Hótel Loft-
leiðum, Hótel Sögu og síðar
sem yfirþjónn í Sesar. Þegar
Sesar var seldur, hóf Hilmir
störf sem sölustjóri hjá Bíla-
sölu Guðfinns og gegndi því
starfi þar til hann tók við nú-
verandi stöðu.
„Það besta við þetta starf
er breytingin, sem verður á
vinnutímanum. Nú getur
maður átt kvöldin og helg-
arnar með konunni."
Eitthvað líkt með fram-
reiðslustarfinu og sölu-
stjórastarfinu?
,,Já, ég er uppalinn við að
selja, — þetta er diplómat-
ískt starf. Það er uppgangur
í fyrirtækinu, og þetta er
gífurlega gott starf."
Frá fógeta í
Fasteigna
markaðinn
Pétur Þór Sigurðsson tók
við nýju starfi framkvæmda-
stjóra Fasteignamarkaðar
Fjárfestingafélagsins hf. við
opnun 17. mars sl.
Pétur er fæddur í Reykja-
vík 29. mars 1954 og lauk
lögfræðiprófi frá Háskóla
íslands sl. haust. Hann vann
síðan hjá fógeta í Reykjavík
frá því hann útskrifaðist lög-
fræðingur og þar til hann
tók við hinu nýja starfi.
Hann kvaó nýja starfið
leggjast mjög vel í sig. Menn
hefðu þegar sýnt mikinn
áhuga á því sem þeir væru
aö kynna, en það eru nýjar
leiðir í fasteignaviðskiptum
sem byggjast á verðtrygg-
ingu.
9