Frjáls verslun - 01.03.1981, Qupperneq 19
„boddíin”
Island er svo lítill markaður að
það er nánast útilokað að tvær eða
þrjár ferðaskrifstofur geti haft af
því einhvern verulegan hagnað að
bítast um sólbekki á sömu strönd-
inni.
Fyrir nokkrum árum var baráttan
einna bitrust á milli Sunnu og Út-
sýnar. Enda sýndi það sig oftar en
einu sinni að persónuleg óvild
þeirra Guðna Þórðarsonar og Ing-
ólfs Guðbrandssonar blindaði þá
gersamlega fyrir viðskiptalegum
staöreyndum. Þeireltu hvorannan
um heimsbyggðina eins og breima
kettir. Ef Ingólfur fann einhvern
nýjan stað var Guðni búinn að
senda þangað farþega með næstu
flugvél, og öfugt.
Röðin ruglast
Á þessum árum var Útsýn
stærsta skrifstofan, Sunna númer
tvö, Úrval númer þrjú og Sam-
vinnuferðir númer fjögur. Hinar
skrifstofurnar voru svo litlar að
þær skiþtu ekki miklu máli. Svo er
raunar enn, nema hvað Kjartan
Helgason virðist þrífast ágætlega í
hinum ótrúlegustu löndum á bak-
við járntjaldið. En nú hefur röðin
ruglast. Sunna er dottin út, eins og
allir vita. Útsýn er áfram stærst, en
Samvinnuferóir eru komnar upp í
annað sæti og Úrval niður í þriðja.
Uppgangurinn hjá Samvinnu-
ferðum byrjaði þegar Eysteinn
Helgason tók þar viö fram-
kvæmdastjórn. Hann rekur mjög
,,aggressiva“ markaðspólitík enda
hefur hann lent í þó nokkrum
árekstrum, ekki síst við Flugleiðir.
Það styrkti og mjög stöðu skrif-
stotunnar þegar hún var gerð að
hlutafélagi sem er í eigu Sam-
vinnuhreyfingarinnar, AS(, BSRB
og Stéttarsambands bænda.
Samvinna við tilsvarandi stéttarfé-
lög á hinum Norðurlöndunum
hefur meðal annars leitt til þess að
Samvinnuferðir hafa náö mjög
hagstæðum kjörum á ferðum í
sumarhús í Danmörku og á Möltu.
Samvinnuferðir hafa raunarekki
breytt frá þeirri venju ferðaskrif-
stofanna að elta hver aðra á sól-
arstrendurnar, nýjasta dæmið um
það er Italía þar sem Útsýn var
nánast einráð. En slíkar eftirfarir
hafa sjaldan tekist jafn vel og hjá
Samvinnuferðum á Rimini og það
er erfitt að deila á það sem
heppnast vel.
Hverjir fara á hausinn?
Samkeppnin í sumar verður ekki
síst hörð vegna þess að á síðasta
ári varð töluverður samdráttur.
Menn eru ekki alveg sammála um
hversu mikill hann var. Hæsta tal-
an sem heyrst hefur nefnd er 30%,
en líklega er hún í hærra lagi. Það
er erfitt að segja til um hvaða
skrifstofa hafi orðið verst úti vegna
samdráttarins, því það er ekki
hægt að treysta þeim tölum sem
þær gefa upþ, um farþegafjölda.
Ef lagðir eru saman þeir farþegar
sem þær, hver um sig sögðust
hafa flutt á síöasta ári eru þeir milli
19