Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 23
inröSesrí'iS
Offramboð á atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu:
Engar verðhækkanir
í heilt ár
Mikið framboð er nú á at-
vinnuhúsnæði hvers konar á
fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu. Lítil hreyfing
virðist hins vegar vera á þess-
um markaði, og erfitt að selja
eignir, jafnvel þótt um nýlegt
og gott húsnæði sé að ræða.
Verð á atvinnuhúsnæði hefur
hækkað mjög lítið undanfarin
misseri, mun minna en verð á
íbúðarhúsnæði, og verð at-
vinnuhúsnæðis hefur jafnvel
verið óbreytt langtímum sam-
an þrátt fyrir verðbólgubálið.
Verð á atvinnuhúsnæði er mjög
breytilegt, og erfitt að gefa ákveðin
dæmi um verð á hinum ýmsu
eignum. Kemur þar margt til. Mjög
mismunandi mikið er lagt í hús-
næði í byggingu, eftir því hvaða
starfsemi það á aö hýsa. Mikill
munur er til dæmis á iðnaðarhús-
næði annars vegar og verslunar-
og skrifstofuhúsnæði hins vegar
hvað þetta snertir. Fleira kemur
einnig inn í myndina, svo sem
gluggapláss, lofthæð, hvort hús-
næðið er allt á sömu hæð eða á
fleiri en einni, staðsetning skiptir
miklu máli og svo framvegis. Dýr-
asta verslunar- og skrifstofuhús-
næðið er nálægt og í miðborg
Reykjavíkur, lægst er verð at-
vinnuhúsnæðis í Hafnarfirði, en
sums staðar í Kópavogi er verð
með því hæsta sem gerist á ión-
aðarhúsnæöi, svo sem á Smiðju-
vegi og öðrum götum í því hverfi.
Þar er verð til dæmis hærra en á
Artúnshöfða í Reykjavík, en betri
hverfi iðnaðarhúsa í Reykjavík eru
þó enn á hæstu verði á höfuð-
borgarsvæðinu og þar með á
landinu, svo sem hús í Skeifunni.
Lítil eftirspurn
Þorsteinn Steingrímsson hjá
Fasteignaþjónustunni sagði í
samtali við Frjálsa verzlun, að það
væri ekkert launungarmál, að of-
framboð væri á atvinnuhúsnæði á
öllu höfuðborgarsvæðinu. Mjög
mikið af eignum væri til sölu, en
eftirspurn væri hins vegar sáralítil.
Orsakir þessa sagði hann marg-
víslegar. I fyrsta lagi mætti nefna,
að samkeppni bæjarfélaganna um
að ná til sín atvinnufyrirtækjum,
heföi gert það að verkum að of
margar lóðir fyrir atvinnuhúsnæði
23