Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Síða 29

Frjáls verslun - 01.03.1981, Síða 29
Kostnaðaráætlun vegna flug- stöðvarbyggingarinnar sjálfrar nemur nú 40,2 milljónum dollara miðað við 1. janúar 1981. Um helmingur þeirrar fjárhæðar kem- ur í hlut íslenzkra yfirvalda. Ljóst er að hér er um dýra bygginu að ræða enda ekki oft, sem ráðizt er í að reisa miðstöð fyrir flugsam- göngur landsmanna við útlönd. Upphaflegu áætlanirnar voru þó mun stórtækari og átti flugstöðin að kosta 50—60 millj. dollara samkvæmt þeim. Það þótti ekki viðráðanlegt og var því ráðizt í endurhönnun, sem lauk nú fyrir fáeinum vikum. Þeir Helgi Ágústs- son, forstöðumaður varnarmála- deildar utanríkisráðuneytisins, og Garðar Halldórsson, húsameistari ríkisins, hafa að undanförnu kynnt teikningar og framkvæmdaáætlun fyrir þeim aðilum, sem málið varð- ar. Hönnun flugstöðvarinnar hefur í meginatriöum verið sameiginlegt verkefni embættis húsameistara ríkisins, Almennu verkfræðistof- unnar h.f. Fjárhitunar h.f. Raf- hönnunar h.f. og Shriver & Holland Associates. Gler og gróður Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli á að rísa vestan við byggðina í Keflavík, uppi á heiðinni norðan flugvallarins. Nýr vegur verður lagður yfir oliugeymasvæðið sem nú er milli Keflavíkurbyggöar og vallarins. Leiðin verður um 4—5 km lengri úr Reykjavík en að nú- verandi flugstöð. Nýja byggingin er þannig hönn- uö að auðveldlega má stækka hana til norðurs um helming og með tiltölulega litlum kostnaði. Þaö sem fyrst vekur athygli í útliti hennar eru miklir gluggar á tveim hliðum, sem eiga að skapa skil- yrði fyrir skemmtilegt andrúms- loft í veitingasölum og gróður- skála, sem skipulagður verður í námunda við þá. Hér er um að ræða vandmeðfarið hönnunar- atriði og hefur upplýsinga verið aflaó um nýjustu tækni erlendis frá viö gerð slikra glermannvirkja, sem eiga með notkun nýjustu efna og tækniaðferða að þola þenslu og álag í þeim veðrum, sem vænta má á þessum slóðum. Verður byggingin gerð úr gleri, stáli og steini. Útboð byggingarfram- kvæmdarinnar verður einskorðað við íslenzka og bandaríska aðila. „V.I.P.“-herbergi og góður aðbúnaður starfsfólks Gerð flugstöðvarbyggingarinn- ar gerir ráð fyrir inngangi brottfar- arfarþega við vesturhlið bygging- arinnar en komufarþegar munu ganga út við austurhlið. Byggingin verður tvær hæðir. Á neöri hæð- inni er afgreiðsla farþega og far- angurs auk tolleftirlits og þjónustu við farþega, svo sem upplýsinga- þjónusta, kaffistofa, banki, póst- hús, bílaleiga o.fl. Fyrirhugað er að bjóða þennan rekstur út. Á efri hæð verða verzlanir eins og Frí- höfnin, íslenzkur markaður auk biðsalar, einkastofu fyrirmanna meðal farþega (V.I.P.-herbergi, veitingarrekstrar, flugeldhúss, skrifstofuhúsnæðis, flugvallar- þjónustu flugfélaga og verður- stofu, auk aðstöðu fyrir starfsfólk- ið. Áherzla hefur verið lögð á góð- an aðbúnað starfsmanna í hví- vetna og farið í því efni eftir ákvæðum úr reglugerðum í ná- grannalöndum um aðbúnað á slíkum vinnustöðum. Allur farang- ur verður t.d. fluttur með rafknún- um vögnum inn í bygginguna, þar sem losun fer fram. Þá verða rúllustigar fyrir farþega til að kom- ast á milli hæða auk venjulegra stigaganga og sérstakt tillit hefur verið tekið til fatlaðra við hönnun byggingarinnar, m.a. með lyftu, sem flutt getur fólk í hjólastólum á milli hæðanna. 70% meira rými en nú Núverandi flugstöðvarbygging er að nýtanlegu heildarflatarmáli um 700 m:. Báðar hæðir nýju flugstöðvarinnar eru samtals að nýtanlegu flatarmáli 11900 m2. Að rúmmetratali er byggingin um 85000 rúmmetrar, sem er um 70% stækkun í samanburði við núver- andi aðstæður. Er þar að stærst- um hluta um að ræða svæði, sem ætluð eru til að bæta aðstöðu fyrir starfsfólk og þjónustu við farþega. Burðarkerfi hússins er á þann veg að það býr yfir góðum möguleikum til innanhússbreytinga og stækk- unar. Reiknað er með að um 400 farþegar geti verið í afgreiðslu samtímis. Samdráttur — ekki afgerandi áhrif á stærð Þessi bygging eins og hún lítur nú út á fullfrágengnum teikning- um, er um 30% minni en teikningar danskra hönnuða gerðu ráð fyrir árið 1974. Núverandi utanríkis- ráöherra fól byggingarnefndinni að taka hönnunarforsendur bygg- ingarinnar til ítarlegrar endur- skoðunar í febrúar 1980, einkum með tilliti til mats á stærð, kostn- að og breyttum aðstæðum í millilandaflugi íslendinga. Álit nefndarinnar var að samdráttur í Norður-Atlantshafsfluginu hefði ekki afgerandi áhrif á fyrirhugaóa stærð og var tekið fullt tillit til þessa samdráttar í sambandi við nýtingu einstakra svæða í bygg- ingunni. Til dæmis er nú gert ráð fyrir flugeldhúsinu á efri hæð byggingarinnar en áður hafði því verið ætlaður staöur í sérstakri byggingu. Með aukinni flugumferð má síðar byggja sérstaklega yfir þessa starfsemi og þar með stækka biðsal farþega og önnur svæöi. Ef innanlandsflug yrði flutt til Keflavíkurflugvallar mætti koma afgreiðslu þess fyrir íbyggingunni. Fjöldi farþega um Keflavíkur- flugvöll hefur verið sem hér segir á undanförnum árum: Inn og út úr landinu 1977 275.000 1978 292.000 1979 292.000 1980 260.000 Transit Samtals 255.000 530.000 267.000 559.000 261.000 553.000 138.000 398.000 Flugleiðir gera ráð fyrir í rekstr- aráætlun fyrir yfirstandandi ár að farþegum í Evrópuflugi fjölgi um 2,3% en 41,1% fækkun á Norður- Atlantshafsleiðinni. Teikningarnar gera ráö fyrir að hægt verði að afgreiða fjórar flug- vélar í einu. Að tveim þeirra munu liggja yfirbyggðar landgöngubrýr með biðstofu fyrir farþega úti við vél. Auk þess verða tveir veniulea- ir, opnir útgangar. ® 29

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.