Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 31

Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 31
Er Steingrímur Hermannsson að gjörbreyta flugmálastefnu íslands? Þessarar spurningar hafa margir spurt sig frá því að núverandi ríkisstjórn settist að völdum og Steingrímur Her- mannsson varð samgönguráðherra. í ráðherratíð Steingríms hafa verið meiri sviptingar í flugmálum en sjálfsagt hjá nokkr- um öðrum samgönguráðherra. Þar ber auvitað hæst erfiðleika Flugleiða og þær endalausu umræður sem þeim hafa fylgt, samfara því sem aðrir aðilar á flugmarkaði hafa sótt í sig veðrið. Það, sem þó kann að vera athyglisverðara eru opinskáar yfir- lýsingar Steingríms um að þörf sé breytinga á fyrirkomulagi flugs til og frá íslandi. Pétur J. Eiríksson Þegar haft er f huga aö stefna yfirvalda hefur a.m.k. frá sam- einingu Flugfélags (slands og Loftleiða veriö sú aö Flugleiðir væru hið opinbera flugfélag ís- lendinga en hin félögin, Arnar- flug og Iscargo væri til, án þess aö þau nytu sérstakrar viöur- kenningar, þá brá mörgum í brún þegar Steingrímur Hermannsson gaf til kynna aö um fleiri aðila gæti verið aö ræða í íslenskum flugmálum. Flestir töldu aö hér ætti ráðherrann við Arnarflug, en stjórnendur þess höföu sýnt talsverða drift í rekstri og m.a. sótt þaö aö komast inn í áætlun- arflug. það kom þó í Ijós að Is- cargo var jafn líklegur kandidat, því félaginu var veitt leyfi til áætlunarflugs meó farþega milli Reykjavíkur og Amsterdam, þótt þaö heföi ekki stundaö farþega- flug áður. í sama mund gerði ríkisstjórnin þaö að skilyrði fyrir ríkisábyrgð á lánum til Flugleiða að fyrirtækiö losaði við eignar- hlut sinn í Arnarflugi, þannig að það starfaði sjáfstætt gagnvart Flugleiðum. Voru öflin í fluginu þar með orðin þrjú. Var hugmyndin að þrír aðilar kepptu á hinum litla íslenska markaði? Var hér um algera stefnubreytingu að ræða í flugmálum? Frjáls verzlun bar þetta undir Steingrím Her- mannsson. „Þegar ég hef talað um fleiri aðila í íslenskum flugmálum, hefur það ekki verið bundið við neitt sérstakt flugfélag nema hvað Flugleiðir eru einn þessara aðila að sjálfsögðu. Ég hef aldrei farið dult með þaö að ég tel varasamt að allt flug til og frá landinu sé á einni hendi. Þetta kom strax fram í þingræöu, sem ég hélt 1974, þegar sameining Flugfélagsins og Loftleiða var til umræðu. Eins tel ég fyrir mitt leyti vara- samt hvað Flugleiðir hafa orðið yfirgnæfandi á hótelmarkaðnum og teygt sig inn í bílaleigu og ferðaskrifstofurekstur. Ferða- skrifstofur hafa kvartað við mig um einokun, sem þær telja sig verða að þola af hálfu Flugleiða. Ég er það mikill maður hinnar frjálsu verslunnar að ég tel að svo sterk staða eins aðila sé vafasöm. Þess vegna vil ég stuðla að því, sem ég tel skyn- samlega stefnu, að hér séu tveir aðilar í farþegaflugi þar af annar aðallega í leiguflugi, og kannski þriðji aðilinn í fraktflugi. Það er auðvitað Ijóst að Flugleiðir yrðu stærsti aðilinn og hefðu okkar helstu áætlunarleiðir, svo sem Nörðurlönd og Bretland og svo eitthvað leiguflug til uppfyllingar. Leiguflugsaðilanum mætti hins vegar skapa einhverja festu með örfáum áætlunarleiðum. Hvað Iscargo varðar þá hef ég aldrei farið leynt með að það kom eins og skrattinn úr sauðalegg að Flugráð mælti með því að þeir fengju leyfi til áætlunarflugs. Forráðamenn Iscargo leituðu til mín en ég lýsti mínum efasemd- um um að þeir fengju að fljúga áætlunarflug með farþega. Ég kvaðst hins vegar ekki mundu standa á móti ef Flugráð féllist á það. Svo fór í Flugráði að fjórir greiddu atkvæði meö umsókn Iscargo en enginn á móti. Þá var loforöið hermt upp á mig og ég sá mig skyldan að standa við það. Ég lít hins vegar á þessa leyfisveitingu, sem undantekn- ingu og tel reyndar að þetta flug geti orðið erfitt í framkvæmd. Ég vil þó taka fram að ég tel Iscargo vel aó þessu komið ef unnt reyn- ist að auka hagkvæmni með blönduöu vöru- og farþegaflugi. Sá vilji stjórnvalda að Flug- leiðir selji Arnarflug og að félagið verði sjálfstæður aðili byggist fyrst og fremst á þeirri stefnu að hér verði leiguflugsaðili, óháður Flugleiðum, sem ferðaskrifstof- urnar geta leitað til. Það er rétt að minna á að þegar Arnarflug fékk leyfi til innanlandsflugs var það skilyrði sett að flugið yrði rekið óháð Flugleiðum. Ég er ekki að segja að svo hafi ekki verið í inn- anlandsflugi en ég lít svo á að 31

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.