Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 37
Þjálfunarmiðstöð
Samvinnuhreyfingarinnar:
Svara breyttum kröfum
með endurþjálfun
starfsfólksins
Helga Ingólfsdóttir
Við Samvinnuskólann að
Bifröst í Borgarfirði er starf-
rækt sérstök námskeiðadeild
sem er eins konar þjálfunar-
miðstöð samvinnuhreyfingar-
innar. Á vegum skólans eru nú
skipulögð um 20 tegundir af
námskeiðum í hinum ýmsu
greinum er koma inn á svið
daglegs reksturs kaupfélag-
anna, Sambandsins og sam-
starfsfyrirtækja.
Námskeið þessi eru haldin fyrir
félagsmenn samvinnuhreyfingar-
innar og starfsmenn hennar, og
hefur námskeiðum fjölgað jafnt og
þétt frá því að þessi starfsemi hófst
árið 1977. Þannig voru námskeið
skólans alls 86 árið 1980, kennarar
30 og þátttakendur 1390.
Til þess að afla frekari vitneskju
um þessa umfangsmiklu starfsemi
Samvinnuskólans lagði blaða-
maður FV nokkrar spurningar fyrir
Hauk Ingibergsson, sem verið
hefur skólastjóri Samvinnuskól-
ansfrá 1974.
Þú vilt kannski segja okkur eitt-
hvað í upphafi um Samvinnuskól-
ann og markmið hans?
Samvinnuskólinn var stofnaður
árið 1918. Hið upphaflega mark-
mið skólans var tvíþætt: Að þjálfa
fólk til starfa innan vébanda sam-
vinnuhreyfingarinnar og að út-
breiða samvinnuboðskapinn.
Skólinn starfar í þremur deildum,
þ.e. Samvinnuskólanum að Bif-
röst, sem er tveggja vetra nám og
lýkur með Samvinnuskólaprófi,
framhaldsdeild Samvinnuskólans,
sem stofnuð var árið 1973 og
starfar í Reykjavík og brautskráir
stúdenta að loknu tveggja vetra
námi, og loks námskeiðadeildin að
Bifröst, sem stofnuð var 1977 og
annast námskeiðahald fyrir sam-
vinnuhreyfinguna.
0
Fjöldi þátttakenda á námskeiðum Samvinnuskólans
1977 — 13/2 1981
Ár Námskeið Karlar Konur Alls Fjöldi þjálfunardaga
1977 1 13 26 39 19,5
1978 31 232 468 700 444,0
1979 65 376 865 1.241 900,0
1980 86 618 772 1.390 1.053,0
1981 19 197 130 327 357,5
Alls 202 1.436 2.261 3.697 2.744,0
37