Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 47

Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 47
það okkur t.d. mikið, að enginn umboðsmaður var starfandi í Lyon. — Eru skilyrði fyrir hendi til að fara með sýningar víða um lönd þannig að þær skili fljótlega árangri? Sveinn: Það er hægt að gera miklu meira á sviði vörukynningar. En aðgerðirnar hljóta að miðast við getu manna heima á íslandi. Framleiöslufyrirtækin eru yfirleitt ekki stór og þau ráða yfir takmörkuðum mannafla til að sinna kynningarmálum. Víða eru menn komnir inn á góða markaði, sem þeir vilja leggja betri rækt við fremur en að flengjast víðar. Hulda: I Ijósi þessara skorða sem smæðin setur fyrirtækjum heima hefur verió mjög ánægjulegt aö fylgjast með aukinni viðleitni þeirra til að vinna saman að undirbúningi sýninga í stað þess að hvert fyrirtæki væri eitthvað að pukrast út af fyrir sig. Það sparast miklir peningar ef 2—3 aðilar taka sig saman, ráða sameiginlega sýningarstúlkur til að sýna vörur frá þeim öllum og dreifa síðan upplýsingaritum frá öllum viðkomandi fyrirtækjum. — Hvernig hafið þið skipulagt þessa kynningu hér á Aerogolf? Hvað fer hér fram? Hilmar: Þetta er fyrst og fremst hótelkynning, sem stendur í 14 daga. Ég hef verið fenginn til að aðstoða starfsmenn eldhússins við að matreiða úr íslenzka hráefninu meðan þettaeraðfara af stað. Ég kom með um 650 kíló af íslenzkum mat með mér að heiman, lax, reyktan og nýjan, kavíar, rækjur, hangikjöt og osta. Næstu tvær vikurnar verður því sérstakur, íslenzkur matseðill kynntur hér í veitingasölunum. Landkynn- ingarbæklingar munu einnig liggja frammi. Þessu til viðbótar höfum við sýnishorn af íslenzkum útflutn- ingsvörum, og margs konar veggskreytingar til að minna á landið. Það verður móttaka fyrir blaðamenn og fulltrúa frá ferðaþjónustufyrirtækjum kl. 18—20 íkvöld. Sýning- arstúlkurnar tvær, sem hingað komu með okkur, sýna þá nýjustu tízkuna í prjónavörunum og auk þess kynnum við land og þjóð eftir megni fyrir gestunum. — Hvaða árangurs er að vænta af svona mat- vælakynningu í beinhörðum tekjum fyrir íslenzk út- flutningsfyrirtæki? Hulda: Tilgangurinn er fyrst og fremst sá aö vekja athygli á islandi. Fólk kaupir líka gjarnan matvörurnar í verzlunum þegar það hefur bragðað á þeim hér á hótelinu, ef þær eru þá á annað borð fáanlegar. Þetta undirstrikar enn mikilvægi þess að hafa um- boðsmann og dreifingu á vörunum svo hægt sé að svara þeirri eftirspurn sem vaknar við kynninguna Menn þurfa að geta staðsett (sland, ef svo mætti segja, og læra meira um land og þjóð, til þess að kunna betur að meta þær vörur, sem við seljum á mörkuðum erlendis. Hilmar: Mér er kunnugt um mann í Þýzkalandi, sem smakkaði íslenzkan mat á hótelkynningu þar í landi, og vildi ólmur hefja innflutning á kavíar og skyri. Ég veit nú ekki hvernig þetta gekk með skyrið. En hann fékk allar uþplýsingar hjá okkur á staðnum um þá aðila heima, sem hann ætti að leita til. Oft snúa þessir aðilar sér ekki til fyrirtækjanna heima fyrr en nokkru eftir kynningarnar, og það er ekki einu sinni víst að þeir taki nokkurn tíma fram að þeir hafi fyrst komizt ( snertingu við vörurnar á kynn- ingu af þessu tagi. — Höfðuð þið árangur sem erfiði af sýningunum í Frakklandi í fyrra? Sveinn: Það tel ég alveg tvímælalaust. Við sýndum í París, Lyon, Strasbourg, Grenoble og Boulogne. Þaö er talsvert um ísland og íslenzkar vörur fjallað í blöð- um og sjónvarpi á þessum stöðum, nema í París. Þá buðum við 60 fréttamönnum til móttöku þar en það komu ekki nema 5. Fjölmiðlum í höfuðborginni finnst þetta ekki nógu merkilegt og sinna því þess vegna ekki. En við þurfum ekki endilega að ráðast inn í París. — Áttu við að meiri árangurs sé að vænta í borg- um í „dreifbýlinu"? Sveinn: Að sumu leyti, já. I Lyon fengum við mjög mikla og góða umfjöllun í blöðum, útvarpi og sjón- varpi. Einar Benediktsson, sendiherra í París, notaði tækifærið og þáði boð um opinbera heimsókn til borgarinnar, sem vakti athygli. Hann heimsótti borg- arstjórann og sýslumann héraðsins í tengslum við vörukynninguna og frá því var ítarlega greint í fjöl- miðlum. Hulda: Mér fannst það merkilegast við sýningarnar í Frakklandi, hvað gæði íslenzku vörunnar komu fólki á óvart. Það virtist hafa óljóst hugboð um að frá fornu fari hefðu Islendingar getað prjónað lopapeysur og sokkaleista. En að við skyldum framleiða svo mikla gæðavöru og í samræmi við nýjustu tízku kom heldur flatt upp á menn. Sveinn: Ég varð þessa mjög áskynja, þegar ég fór í undirbúningsferðir á staðina fyrir sýningarnar. Þá hitti ég hótelstjóra og fleiri. Menn tóku mér svo sem vel, en ég hafði á tilfinningunni að þeir gerðu sér ekki grein fyrir getu okkar á þessu sviöi. Þeir áttu von á einhverju frumstæðu og fremur ,,sveitó“. Af þessum sökum urðu þeir ekki aðeins ánægðir, þegar þeir sáu um hvað þetta snerist, heldur líka alveg undrandi. Fólk frá fínum tízkuverzlunum varð t.d. stórhrifið. — Hver borgar brúsann? Hulda: I þessu tilviki, sem um er að ræða hér í Luxemborg hafa iðnfyrirtækin, sem þátt taka í kynn- ingunni, fengið styrk frá iðnrekstrarsjóði. Hann nemur um helmingi af kostnaði þeirra við kynning- una. Hinum helmingnum skipta þau á sig. Yfirleitt skiptist útlagður kostnaður í ákveðnu hlutfalli eftir hagsmunum fyrirtækjanna. Hilmar: Flugleiðir leggja af mörkum ókeypis ferðir eða drjúgan afslátt fyrir þá sem starfa beint að kynn- ingunum. Einnig landkynningarbæklinga og skreyt- ingar. Fyrirtækin borga starfsmönnum sínum laun og dagpeninga. Þau ráöa sýningarstúlkurnar og borga kaup þeirra. Þegar um hótelkynningar er að ræða fá matreiðslumaður og sýningarstúlkur gjarnan ókeypis gistingu og aðrir verulegan afslátt. Annars er þetta fyrirkomulag eins misjafnt og ferðirnar eru margar. Sveinn: I' sumum tilfellum tíðkast það líka, að um- boðsmenn íslenzkra fyrirtækja erlendis standi fyrir kynningu. Þannig var það í Grenoble. Umboðsmaður fyrir íslenzkar ullarvörur stóð að meginhluta straum af kostnaði við þá sýningu. 47

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.