Frjáls verslun - 01.03.1981, Side 57
Má bjóða ykk
kampavín?
Helga Ingólfsdóttir
Kampavín er hátíðadrykkur
sem menn hafa yfirleitt ekki
um hönd nema þegar tilefni er
sérstakt, svo sem í brúð-
kaupsveislum, svo dæmi sé
nefnt. Þó mætti hugsa sér að
stjórnendur fyrirtækja gripu til
þess í viðurkenningarskyni við
góða starfsmenn á tímamót-
um, því ekkert er heppilegra til
að skapa hátíðarstemningu en
hið klassíska, franska kampa-
vín, og fáir fá staðist töfra þess
og gáskafullan leik þegar því
er hellt í glösin.
En sá galli er á gjöf Njarðar að
frönsku kampavínin eru dýr— og
á heimsmarkaðnum hafa þau
hækkað úr hófi fram hin síðari ár.
Ástæðan er m.á. sú að í kampa-
vínshéruðum Frakklands hefur
vínþrúguuppskeran ekki verið góð
nema eitt af þremur undanförn-
um árum. Það var árið 1979. Aftur
á móti var uppskeran léleg á
árunum 1978 og 1980 þannig að
heildarframleiðslan þessi tvö ár
var kringum 185 milljón flöskur,
sem er meðalframleiðsla á einu
ári. Á síðasta ári hækkaði t.d. verð
á vínþrúgum til kampavínsfram-
leiðslu um helming frá árinu áður.
Ráð við þessum vanda er að láta
ódýrari freyðivín nægja. Sé það til
of mikils mælst og menn kjósa
heldur að halda sig við ekta frönsk
kampavín, er mönnum hollt að
gefa gaum að því hvernig með-
höndla á slík gæðavín og fara
sparlega með innihald hverrar
flösku. Hafa menn t.d. leitt hugann
að því hvernig á að bera fram
þessar guðaveigar og í hvernig
glösum, hvernig á að drekka þau
og með hvaða réttum? Það eru líka
til kampavín sem framleidd eru úr
vínþrúgum sömu uppskeru, svo-
nefnd vintagevín, og önnur sem
eru úr fleiri en einni uppskeru og
nefnast non-vintage. Fleira mætti
nefna sem leikmenn kunna yfirleitt
ekki skil á, en fagmenn þekkja.
Nokkrar ábendingar þeirra ættu
því að koma öllum til góða.
57