Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Qupperneq 69

Frjáls verslun - 01.03.1981, Qupperneq 69
En þótt þessar, og fleiri minni framkvæmdir, séu góðra gjalda verðar þá munu þær ekki duga til þegar framí sækir. Bæjarstjórn Húsavíkur veröur að sjálfsögðu að hugsa til þeirra sem koma inn á vinnumarkaðinn á hverju ári. Bæjarstjórnin gerir sér að um 70% hvers árgangs skili sér heima og það þýðir að fjörutíu ungir menn og konur koma út í atvinnulffiö á ári. Þessu fólki þarf að finna störf. í dag eru ýmis samdráttarein- kenni á Húsavík, eins og annars- staðar á landinu og það er því ekki seinna vænna að fara að hugsa til einhvers sem getur haft veruleg áhrif á atvinnulíf og framleiðni. Það yrði nánast bylting ef pappírsverksmiðjan fyrrnefnda yrði reist á Húsavík. íbúar þar eru rétt innan við 2500 og stærsta at- vinnufyrirtækið á staðnum, sem er Fiskiðjusamlagið, er með um 250 manns í vinnu. Sú vinna er þó dá- lítið stopul, eins og gengur og gerist um fiskvinnslufyrirtæki. Það er að vísu ekki búið að ákveða neitt um verksmiðjuna en miðað við hugsanlegar stærðir sem hefur verið rætt um ætti hún að taka 200—300 manns í vinnu. Þar að auki er alltaf geysimargt og mikið í kringum atvinnufyrirtæki af þess- ari stærð. Svona verksmiðja verður auðvitað ekki reist á einni nóttu, frekar en Róm, en það þarf mikinn mannafla og tækjakost til að koma henni upp, þannig að hún myndi byrja að hafa áhrif á at- vinnulífið um leið og framkvæmdir hæfust. Finnum líst vel á sig Finnarnir eru þegar búnir að skoða staðhætti á Húsavík og leist vel á sig, en rétt er að taka fram að þetta var aðeins frumathugun. Hagkvæm orka er grundvallarskil- yrði fyrir því að verksmiðjan verði reist á Húsavík og í því sambandi eru miklar vonir bundnar við há- hitasvæðið á Þeistareykjum. Orkustofnun hefur fengið hálfa milljón króna til rannsókna þar. Og iðnaðarráðuneytið hefur ráöið Edgar Guðmundsson, verkfræð- ing, til að kanna ýmsa þætti máls- ins. Þegar hefur verið hugað að stað fyrir verksmiðjuna og koma Húsavik á vetrarkvöldi. þrír til greina, en af þeim er Bakkahöfði talinn líklegastur, hann er rétt fyrir utan bæinn. Ekkert hefur verið rætt um það að ráði hve mikill hluti framleiðsl- unnar færi fram á Húsavík ef verk- smiðjan yrði reist þar. Fram- leiðslustigin eru mörg og til dæmis þarf að taka ákvörðun um hvort heilir trjábolir yrðu fluttir til Húsa- víkur og teknir til vinnslu, eða hvort hráefnið kæmi kurlað. Einnig getur svona verksmiðja skilað frá sér verkefninu mismunandi mikið unnu. Eins og Húsvíkingar leggja mikla áherslu á, er þetta allt á frumstigi. Og jafnvel þótt ákvörðun yrði tekin í dag, um að reisa verk- smiðjuna fyrir norðan, tæki mörg ár að koma henni í gang. En byggingarframkvæmdin sjálf hefði auðvitað aukna atvinnu í för meö sér. Hvort sem verksmiójan verður reist á Húsavík eða ekki, verður haldið áfram við rannsóknir á Þeistareykjasvæðinu. Taldar eru mjög góðar líkur á að þar sé mikla orku að finna og þá orku hyggjast Húsvíkingar nýta sér í sambandi við uppbyggingu atvinnulífsins.fg Stöndug iðnfyrlrtæki eru þegar til á Húsavík; trésmiðjan Fjalar hefur sótt sér verkefni um landið þvert og endilangt. 69
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.