Frjáls verslun - 01.01.1983, Qupperneq 5
frjáls
verz/un
Sérrit um efnahags-, viðskipta-
og atvinnumál.
Stofnað 1939.
Útgefandi Frjálst framtak hf.
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
RITSTJÓRI:
Magnús Hreggviösson
SÖLU OG MARKAÐSSTJÓRI:
Sveinn R. Sveinsson
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
Auglýsingasími: 31661
LJÓSMYNDIR:
Jens Alexandersson
SKRIFSTOFUSTJÓRN:
Þórunn Þórisdóttir
Tímaritið er gefið út ísamvinnu
við samtök verzlunar- og
athafnamanna
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300 — 82302
SETNING OG PRENTUN:
Prentstofa
G. Benediktssonar
BÓKBAND:
Félagsbókbandið hf.
LITGREINING A KAPU:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir
FRJÁLS VERZLUN
er ekki ríkisstyrkt blað
■ \ i' n i; n
■L’íu .'ia
bréf frá
útgefanda
fslensk fyrirtæki 1983 komin út
Uppsláttar- og handbókin íslensk fyrirtæki er nú komin út í
þrettánda sinn. Frá því hún kom fyrst út hefur bókin tekið miklum
breytingum. Hefur hún verið þróuð eftir þörfum notenda eins og
frekast hefur verið kostur og á hún eflaust eftir að taka frekari
breytingum í samræmi við breyttar þarfir. Að þessu sinni skiptist
bókin í eftirfarandi kafla:
1. Efnisyfirlit og leiðbeiningar um notkun bókarinnar.
2. Iceland today. Þessi kafli hefur að geyma upplýsingar fyrir
erlenda kaupsýslumenn um viðskiptamál á íslandi, auk upp-
lýsinga um íslenskar útflutningsvörur og útflytjendur þeirra.
Þar er skrá yfir sendiráð Islands og helstu ræðismannsskrif-
stofur erlendis.
3. Umboðaskrá. Þessi kafli er á gulum síðum og veitir upplýsingar
um nöfn um það bil fjögur þúsund erlendra fyrirtækja, sem eiga
viðskipti við ísland og greinir frá umboðsmönnum þeirra hér á
landi.
4. Vöru- og þjónustuskrá. Þessi kafli er á bleikum síðum og er þar
að finna um tvö þúsund flokka vörutegunda og þjónustu. Hann
inniheldur upplýsingar um hvaða aðilar versla með tiltekna
vöru eða tiltekna þjónustu.
5. Sýningar erlendis. Þessi kafli er með helstu vörusýningar er-
lendis á árinu 1983.
6. Dagbók. Hún er einkum ætluð smærri fyrirtækjum til skipu-
lagningar á tíma.
7. Fyrirtækjaskrá. Hefur þessi kafli að geyma skrá yfir fyrirtæki,
félög, sveitarfélög og stofnanir á öllu landinu. I honum er að
finna nöfn starfandi fyrirtækja, stofnár þeirra, heimilisföng,
símanúmer, nafnnúmer, söluskattsnúmer, telexnúmer, starfs-
svið, stjórnir, nöfn helstu starfsmanna, starfsmannafjölda, um-
boð, þjónustu og framleiðslu. Þar er einnig fjöldi firma- og
vörumerkja. Þessi skrá er kjarni bókarinnar.
8. Skipaskrá. Hún ernú gagnlegasta skráá landinu yfirskipokkar
íslendinga. Ætti hún að koma að miklum notum fyrir útgerðar-
menn, sjómenn, hafnaryfirvöld, og alla þá, sem skipta við út-
gerðarfyri rtæki.
Vinnsla þessarar útgáfu hófst eftir að eigandaskipti uröu á
Frjálsu framtaki í maí ífyrra og er bókin því að öllu leyti unnin undir
stjórn undirritaðs. Var hér um nýtt og spennandi verkefni að ræða
og vona ég að vel hafi til tekist. Þegar vinnsla bókarinnar hófst sl.
sumar var gerð ítarleg áætlun yfir framleiðslu hennar og er mér
óhætt að fullyrða að hún hafi staðist að öllu leyti.
Ritstjóri Islenskra fyrirtækja 1983 er Guðný Hinriksdóttir.
378051
ÍSLANQS