Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 13
innlent
Nýtt útvarpshús kostar
247 milljónir...
Útvarpsumræður hafa verið miklar hér á landi hin
síðari ár, þar sem saman hefur farið mikil umræða um
íslenska Ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp, og svo
ekki síður um frjálst útvarp, og hvort leyfa eigi rekstur
frjálsra útvarpsstöðva, og þá hvernig og með hvaða
skilmálum. Mikið líf færðist í þessa umræðu eftir að
videokapalkerfi ruddu sér til rúms víða um land, og
eftir að útvarpslaganefnd í kjölfar þess sendi frá sér
álit sitt, þar sem meðal annars er lagt til að útvarps-
rekstur verði gefinn frjáls hér á landi.
Þróunin virðist óumdeilan-
lega stefna í þá átt að hér á
landi verði útvarpsrekstur gef-
inn frjáls eftir tiltölulega
skamman tíma, um það eru
nánast allir sammála. En á
sama tíma er framkvæmdum
hraðað mjög við hið nýja Út-
varpshús í Reykjavík, sem ekki
á aðeins að hýsa hljóðvarp og
sjónvarp á margfalt stærri
gólffleti og meö dýrari tækjaút-
... staðbundin einkastöð
200 þúsund
13