Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 22
innlent
Eins gott við framleiðum
islendingar hafa um áratugaskeið — ef ekki alla tíð — talið að
útflutningsvörur þjóðarinnar væru betri og vandaðri en sam-
keppnisvörur frá öðrum þjóðum. íslenskur fiskur hefur verið
sagður mun betri en fiskur frá Norðmönnum, Kanadamönnum
eða öðrum þjóðum, er selja sjávarafurðir á sömu mörkuðum og
við gerum. Um íslensku ullina hefur verið sagt að hún sé einstök
í heiminum, og engin önnur ull hvað þá gerfiefni geti komið í stað
hennar. íslenskt lambakjöt höfum við sagt að sameini kosti
villibráðar og húsdýrakjöts, og það á að taka langt fram lamba-
kjöti frá Nýja-Sjálandi, Ástralíu eða Guð má vita hvaðan. Svipað
höfum við talið okkur trú um að eigi við um húsgögn og hrossa-
kjöt og allt þar á milli. Þegar saman fari annáluð gæði íslensks
hráefnis og íslenskt hugvit og verkmenning, standi fáir eða engir
okkur á sporði. — Helst að verðbólgan og hið óstöðuga gengi
geti gert okkru skráveifu, en annað höfum við varla talið að bæri
að óttast. Margt virðist hins vegar benda til að þetta sé að breyt-
ast og að íslendingar þurfi í rauninni að leggja hart að sér á
næstunni, eigi útflutningsvörur landsmanna ekki að fá á sig
vafasaman stimpil, þar sem allir verða látnir gjalda undantekn-
inga eða minnihluta.
,,Það eru sífellt aö berast fréttir
af skemmdum vörum og gallaðri
framleiðslu, þar sem í nánast öll-
um tilvikum er um að kenna leti,
vankunnáttu eða trassaskap"
sagði einn þeirra er starfa að
markaðsöflun erlendis, í samtali
við Frjálsa verzlun fyrir skömmu.
,,Þegar ég hugsa um öll þau mis-
tök sem við höfum verið að gera í
þessum efnum undanfarin ár og
misseri, verður mér sífellt oftar á
að hugsa, að það sé þó að minnsta
kosti bót í máli, að við framleiðum
,,aðeins matvæli" en ekki ein-
hverja enn viðkvæmari vöru, svo
sem þotuhreyfla! — Sannleikurinn
er sá“ bætti þessi viðmælandi
blaðsins við, ,,aö viö verðum nú að
taka á honum stóra okkar í þess-
um efnum og stórbæta og vanda
útflutningsvörur okkar, ef ekki á
illa að fara. Innan tíðar getur það
orðið of seint."
Þessi ummæli rifja upp fjöl-
margar fréttir í fjölmiðlum að und-
anförnu, þar sem getið hefur verið
um furðulegustu tilvik, sem upp
hafa komið í sambandi við útflutn-
ingsiðnaðinn. Ofteru þessarfréttir
þess eðlis að engu er líkara en
verið sé að segja frá einhverri
vanþróaðri þjóð í þriðja heiminum,
sem enn hefur ekki tekst að feta
sig fram til 20. aldarinnar, eins og
við teljum þó aö okkur hafi tekist.
Lakari gæði og minni
vöruvöndun valda meiri
og meiri áhyggjum
22