Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1983, Síða 47

Frjáls verslun - 01.01.1983, Síða 47
uöu Playboy um að vera í sam- böndum við mafiuna. Formleg ástæöa var hins vegar gefin sú aó Playboy hefði gefið krít til stórspilara meö tryggingu í ávísunum, sem svo reyndust vera innistæðulausar. í stað þess aö áfrýja ákvörð- un yfirvaldanna hljóp örvænt- ing í Hefner og lét hann selja spilavítin í Bretlandi fyrir 31 milljón dollara, eða minna en sem nam hagnaði eins árs og aðeins brot af raunverulegu markaðsverði, sem álitið var vera yfir 300 milljónir dollara. Að auki lét Hefner selja um 80 veðmálasjoppur og bingófyrir- tæki hingað og þangað um Bretland. Atburðirnir í Bretlandi höfðu vafalaust áhrif á bandarísk yf- irvöld. En formlega séö var það atþurður, sem átti sér stað fyrir 20 árum, sem felldi Hugh Hefner þar. Þá hafði Playboy mútað embættismönnum í New York til að fá vínveitingaleyfi í næturklúbbi sínum þar í borg. Þegar dyr spilavítis og hótels í Atlantic City voru opnaðar í apríl 1981 virtist velgengnin brosa við. Staösetningin í þessari nýju ,,spilaborg“ Bandaríkjanna var eins góð og frekast var á kosið viö gamla „boardwalkinn" við Atlants- hafsströndina. En það kom fljótt í Ijós aö Hefner var með tóma hunda á hendi. Spilavítið var byggt upp eftir evrópsku munstri þ.e. til að lokka forríka stórspilara frá Mið-Austurlönd- um, Afríku og meginlandi Evr- ópu. Hugmyndin var að losna við hjarðir af amerískum feróa- mönnum, sem helst vilja leika sér að smáaurum í spilaköss- um. En formúlan gekk ekki upp. Þvert á alla spádóma tapaði spilavítið fyrsta árið einni millj- ón dollara. Stjórnendurnir höfðu hins vegar talió sér trú um aó hvernig sem staðið yrði að rekstrinum yrði hagnaður- inn svimandi hár líkt og hjá fyr- irtækinu Resorts International, sem opnaði fyrsta spilavítið í Atlantic City. Hugh Hefner og hln þrítuga dóttir hans Christie, sem nú tekur við stjórn fyrir- tækisins. Bandarísk yfirvöld hafa nú gefió Playboy einn kost. Ef Hugh Hefner selur hlutbréf sín í fyrirtækinu, getur það fengiö endurnýjað leyfi fyrir spilavít- inu. En líklega mun Hefnerfást til alls annars. Nú á hann 70% hlutabréfa í samsteypunni, en sá hluti er nú talinn vera um 80 milljónir dollara viröi. Því hefur Playboy valið þann kost að reyna að selja spilavítið. Sú stefna að dreifa rekstrin- um á mörg svió skapaði í sjálfu sér engin vandamál á meðan blaóið Playboy reyndist gull- náma. Fyrstu 15 árin óx upplag Playboy Magazine stöðugt og náói hámarki 1972 með 7 millj- óna eintaka sölu á mánuði. Síðan kom til sögunnar sam- keppni frá nýjum tímaritum eins og Penthouse og Hustler og upplagið féll og með því auglýsingatekjur. f fyrra voru hreinar tekjur af blaðinu 6 milljónir dollara samanborið við 39 milljón dollara hagnað af spilavítunum. Hefner og stjórnendur sam- steypunnar þjáðust af mikilli útþenslusýki og breiddu sig yfir rekstrarþætti sem þeir höfðu lítið vit á. Þó aó upprunalegt svið fyrirtækisins hafi verið fjölmiðlun höfðu stjórnendurn- ir alltaf tilhneigingu til aö líta á skemmtanaiðnaðinn, sem sitt svið. Stjórnendurnir höfðu komið sér vel fyrir og launaumslög þeirra voru digur. Stjórnunar- kostnaður fyrirtækisins hefur því verið óeðlilega hár og stefnir Christie Hefner nú að því aó skera hann niður um 40%. Er óhjákvæmilegt að margir hausar fjúki. Það sem nú stendur eftir að Playboyveldinu er tímaritiö Playboy, sölutekjur af einka- leyfum á notkun á Playboy- merkinu, nokkrir næturklúbbar og kapalsjónvarpskerfi, sem nýlega hefur verið komió á fót. En þaö er langt í frá aö þaö sé sökkvandi skip sem Christ- ie Hefner hefur tekið aó sér aó stjórna. Salan á hinum og þessum rekstrarþáttum hefur hingað til gefið um 90 milljónir dollar í tekjur. Það er sem sagt nóg af peningum í kassanum og þar aó auki er fyrirtækið nánast skuldlaust. Spurningin er bara hvar Playboy mun setja sína peninga næst. Vió krýn- ingu á leikfélaga ársins gaf Hugh Hefner stefnuna til kynna: „Kapalsjónvarpsmark- aöurinn gefur nú sömu mögu- leika og blaðamarkaöurinn gaf fyrir 20 árum“. Playboy ætlar sem sagt að halsa sér völl í ..rafeindafjöl- miðlun" en þar verðuraðallega um að ræða framleiðslu efnis á myndbönd og rekstur kaþal- sjónvarþskerfa. Fyrirtækið er þegar komiö langt meó undir- búning á eigin Playboyrás, en áhorfendur fá aðgang að dag- skránni með því að borga mánaóarlega afnotagjald. 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.