Frjáls verslun - 01.01.1983, Qupperneq 49
erlent
Smekkur bandaríkjamanna
á áfengum drykkjum hefur
gjörbreyst á undanförnum ár-
um þannig að mjög hefur
dregið úr neyslu hinna ýmsu
tegunda af whiskey á sama
tíma og neysla borðvína hefur
aukist mjög. Jafnframt hefur
aukist notkun óáfengra
drykkja, einkum sódavatns.
Þetta sýna tölur glögglega:
Árið 1980 var hlutfall
wiskeys af heildarsölu áfengra
drykkja í landinu 48,5% og
hafði þá iækkað úr 49,5% frá
árinu áður og úr 65,1% árið
1970. Á sama tíma hafði neysla
borðvína aukist úr 267,4 mill-
jón gallonum árið 1970 í 444,3
milljón gallon árið 1979 og
áætluð heildarsala á síðasta
ári var 476,0 milljón gallon.
Stærsti kaupendahópur
áfengra drykkja í Bandaríkjunum
er fólk á aldrinum frá 25 til 44ra
ára. í þessum aldursflokkum nú
eru þeir í meirihluta sem ungir
voru á tímun andófs og óróa víða
um land á árunum um og eftir 1960,
m.a. viö háskóla og aðrar mennta-
stofnanir. Með árunum hefur
dregið úr andófinu hjá þeim en
jafnframt hafa þeir kastað fyrir
róða ýmiss konar hefðbundnúm
neysluvenjum, m.a. á sviði áfengra
drykkja og borðvína.
Yfirleitt er tilhneigingin nú sú að
þetta fólk sækist meira eftir léttum
drykkjum og sætum en aðrir þeim
eldri, og borðvínin eru ekki aðeins
notuð með mat heldur er einnig
boðið upp á létt vín fyrir mat frekar
en sterka kokkteila eða whiskey.
Þettaáviðborðvínsneyslunaíheild,
því ekki ber á aukningu einnar
tegundar fram yfir aðrar. Og í
búðum þar sem áfengir drykkir eru
seldir er nú talið að 60% til 70% af
söluvarningnum sem sýndur er í
gluggum hinna ýmsu verslana og í
hillum innan dyra séu létt vin.
Einnig sækist þetta fólk meir
eftir blönduðum drykkjum en hinir
sem eldri eru, og er undirstaðan
þá oft suðrænir ávaxtasafar. Þetta
hefur einnig haft í för með sér
aukna sölu á svonefndum hvít-
vöruflokkum áfengisframleiðsl-
unnar, svo sem vodka, gin og rom,
því þessar tegundir hæfa betur í
slíkar blöndur en whiskey. Af
sömu sökum er búist við aukningu
á brandy og líkjörum ýmiss konar
og ber þegar meir á því að líkjörar
eru ekki síður boðnir fyrir mat en
eftir — og þá oft blandaðir léttari
vínum eða óáfengum drykkjum.
En þótt sala í þessum flokkum
áfengra drykkja hafi aukist nokkuð
milli áranna 1979 og 1980 (þannig
að hún er nú hærri en sala á hinum
ýmsu tegundum whiskey) hefur
sala á whiskey dregist svo saman
að heildaraukning í sölu sterkra
drykkja í Bandaríkjunum milli
þessara ára var ekki nema 1%, og
milli áranna 1978 og 1979 var
aukningin 1,1%.
Margir stórframleiðendur fyrir
whiskey berjast nú í bökkum og sjá
enga breytingu framundan. ,,Létt
vín eru komin í tísku," segja þeir,
,,og útbreiðsla þeirra mun halda
áfram. Þróunin verður því sú að
áhersla verður lögð á framleiðsu
drykkja sem einkennast af léttleika
og litlu alkohólinnihaldi." Því er
það að mörg þessara stórfyrir-
tækja hafa þegar farið út í fram-
leiðsu á léttum vínum jafnframt
hinni hefðbundnu framleiðslu.
49