Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 76
bygging og búnaður
Framboð á gólfefnum
til nota jafnt í heimahús-
um sem atvinnuhúsnæði
hefur margfaldast hér á
undanförnum árum og
eru stöðugt að koma fram
nýjungar. Það getur því
reynst meiri háttar höfuð-
verkur að gera upp við
sig, hvað skal á gólfið
fara þegar verið er að
taka í notkun nýtt hús-
næði. Gólfið skiptir
nefnilega miklu máli, ekki
einungis hvað útlit varð-
ar, heldur einnig loft-
ræstingu, hlýleika,
hljómburð, þrif og svo
þarf það helst að endast
vel og lengi.
Við gerðum hér smáathugun
á því hvaða efni væru helst á
boðstólum til nota fyrir at-
vinnuhúsnæði. Hringinn
þrengdum við talsvert með því
að afmarka húsnæðið til nota
fyrir léttan lager og skrifstofur
ásamt nokkrum fylgiherbergj-
um. Nánar tiltekið ímyndum við
okkur að um sé að ræða nokk-
uð stóra heildverslun, sem er
að taka í notkun nýja hæð
undir starfssemi sína. Fyrirtæki
þetta flytur inn ýmis konar
smávarning, léttan og með-
færilegan og hyggst nýta
drjúgan hluta af hæðinni fyrir
lager. Þá skulu þarna rúmast
söludeild, skrifstofur, tölvuher-
bergi, matsalur eða kaffistofa
fyrir starfsfólk og einnig snyrt-
ga vel