Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 92
hestbaki, í landslagi, á sjó eða hvað sem vera vill. Einnig er
nokkuð um að andlit séu máluð mun stærri en líkamsstærð, í
yfirstærð, þar sem minni áhersla eða engin er lögö á að sýna
herðar eða líkamann í heild. Hin hefðbundnu portrett eru nær
alltaf notuð þegar um gjafir er að ræða eða tyllidagaástæður, en
þegar menn panta sjálfir af sér portrett, eða láta gera maka sinn
eða börn, er oft beðið um frjáls portrett. Mörg kunn frjáls portrett
eru til eftir þá Balthazar og Gísla Sigurðsson, sem og marga aðra
listamenn.
Portrettmálverkavinna er viðurkennd sérstök grein innan mál-
aralistarinnar, og talin ein hin vandasamasta. Þar þarf að koma til
mikill teiknihæfileiki listamannsins, og mikil æfing, eigi árangur-
inn að verða góður. Margir kunnir listmálarar, sem getið hafa sér
frægðar fyrir málverk sín, hafa aldrei náð tökum á portrettinu.
Gagnrýnendur eru alla jafna harðir er þeir fjalla um verkin, enda
eru þaö venjulega þeir menn sem málaðir hafa veriö, svo enginn
listamaður endist í þessari grein listarinnar, nema hann hafi til að
bera mikla hæfileika og tilfinningu fyrir þeim aðila er hann málar
hverju sinni.
Ferðalagið verðtryggt
Það að borga inn á bíla til að festa veró þeirra í íslenskum
krónum er löngu þekkt fyrirbrigði. Fólk gat bankaborgað bíl, eins
og það er kallað og við það festist verðið og gat orðið um um-
talsverðan gengishagnað ef langur tími leið frá bankaborgun þar
til endanlega var gengið frá reikningnum og bíllinn tekinn. Þetta
heyrir nú sögunni til hvað snertir bíla og aðrar innfluttar vörur þar
sem fjármálaráðuneytið hefur komið í veg fyrir þennan möguleika
með reglugerð. En nú er hægt að gengistryggja ferðalagið.
Flugleiðir bjóða nú verðandi farþegum sínum að festa verðið á
ferðum með því að greiða farmiðann strax en á móti lofar félagið
aó verðið á miðanum breytist ekki hvað sem tautar og raular í
gengismálum eða fargjaldahækkunum. En er hér um að ræða
gróða fyrir nokkurn nema Flugleiðir? Jú, fargjöld eru skráð í doll-
urum og nánast mánaðarlega breytist verð þeirra í íslenskum
krónum í samræmi við hækkað gengi dollarans hér. Meiri líkur eru
á því að dollarinn hækki meira og fyrr en kaupið þannig að hyggir
þú á ferð á árinu og átt pening gætirðu grætt nokkur þúsund með
því að borga strax og fljúga seinna. Svipuð kjör eru í boði hjá
Samvinnuferðum — Landsýn. Hefur ferðaskrifstofan tekið upp
svonefnda ferðaveltu, sem hugsuð er þannig að viöskiptavinur-
inn borgar mánaðarlega inn á ferð og festir um leið verðið í
hlutfalli við innborgun. Góð hugmynd og örugglega báðum til
hagsbóta — seljanda og kaupanda.