Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 17
rúma 3.4 milljón lítra. Loks má nefna
Soda Stream þykkni. Af því voru
framleiddir 585 þúsund lítrar. Með
því að margfalda með 8 svarar það til
tæplega 4.7 milljón lítra af gosi sem
búið er til í heimahúsum. Það svarar
til rúmlega 19 lítra gosneyslu á
mann til viðbótar þeim tölum sem
gefnar eru upp í töflunni en þar er
aðeins tekið mið af því gosi sem
framleitt er í verksmiðjum hér
heima.
Hvemig skiptist
markaðurinn?
Miklar vangaveltur eru ávallt um
það hvernig markaðurinn skiptist
eða hafi skipst milli gosdrykkjafram-
leiðendanna þriggja. Ekki hefur
reynst unnt að fá nokkrar tölur
staðfestar. Frjáls verslun hefur
traustar heimildir fyrir því að heild-
arveltan í öl-og gosdrykkjagerð
1985, um 830 milljónir króna, skipt-
ist þannig: Vífilfell 55%, Ölgerðin
25.5% og Sanitas 19.5%. Þegar litið
er á gosið eitt og sér er talið að hlut-
ur Vífilfells sé miklu meiri. Þeir sem
til þekkja telja að Vífilfell hafi ver-
ið með tvo þriðju af gosmarkaðnum
en Ölgerðin og Sanitas hafi skipt
einum þriðja nokkuð bróðurlega
milli sín. Vífilfell hefur ekki fengist
til þess að staðfesta þessa skipt-
ingu. Lýður Friðjónsson fjármála-
stjóri sagði að það væri stefna fyrir-
tækisins að gefa ekki upp sölutölur.
Vafalaust hefur Sanitas tekist að
auka hlut sinn á markaðnum á þessu
ári með dósagosinu en spurningin
er hvað mikið. Ragnar Birgisson
taldi að markaðshlutdeild Sanitas
væri nú komin í um 28%. Jóhannes
Tómasson hjá Ölgerðinni sagði að
salan hjá þeim hefði aukist um 30%
það sem af er árinu. Að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um hlut Öl-
gerðarinnar í markaðnum. Enginn
veit í raun hvað markaðurin stór á
þessari stundu. Hver framleiðandi
veit bara um sínar tölur og þegar all-
ir vilja ekki gefa þessar viðkvæmu
upplýsingar verður ekkert sagt með
vissu. Þó má álykta að markaðurinn
sé að stækka og aukningin hafi frem-
ur leitað til Sanitas og Ölgerðarinn-
ar. A hinn bóginn mun Vífilfell hefja
Davíð og Golíat. Davíð hefur lagt í mlklar fjárfestingar við að framleiða
plastdósir. Gosmarkaðurinn er haröur og margir telja að nú hafi Davíð
færst of mikið í fang. Að baki Davíös er vélmennið Goliat og enginn veit
hvað getur gerst þegar þeir leggja saman, Davíð og Golíat.
framleiðslu á dósagosi fljótlega og
getur þá beitt sér betur í samkeppn-
inni og hugsanlega unnið upp for-
skot Sanitas á því sviði. Nýlega setti
Sanitas gos á markaðinn í 2ja lítra
plastflöskum en eftir er að sjá við-
brögð neytenda við þeirri nýjung.
í þessari stöðu kemur fjórði fram-
leiðandinn inn í myndina og eykur
enn á þá spennu og samkeppni sem
fyrir var. Hætt er við því að hlutföllin
á markaðnum eigi eftir að raskast en
hvernig er ógerningur að segja til um
fyrirfram. Þar verður spurt að Ieiks-
lokum.
Þarf 10% af
markaðnum
„Ég hef nú heyrt það áður að ég
væri búinn að tapa glórunni", sagði
Davíð Scheving Thorsteinsson for-
stjóri Sól hf, í samtali við Frjálsa
verslun þegar talið barst að efasemd-
um um gosframleiðsluna hjá Sól.
„Þetta var sagt þegar ég byrjaði með
Soda Stream, sömu raddir heyrðust
þegar ég hóf framleiðslu á Svala og
reyndar einnig þegar ég var að byrja
með jurtasmjörlíkið. Það þótti nú
alveg fyrirfram dæmt til að mistak-
ast.“
17