Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 19

Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 19
Bækur „Bentum á sérstöðu þessa þögla miðils“ —segir Ólafur Ragnarsson úgefandi um vel heppnað markaðsátak bókaútgefenda Við erum bókmenntaþjóð, á því leikur enginn vafi. Menn- ingararfurinn segir okkur það, svo og kilirnir sem prýða stáss- stofur íslenskra menningar- heimila. En á undanförnum árum hefur bókin átt í vök að verjast, einkanlega gagnvart ljósvakamiðl- unum, myndböndunum og gróskumikilli tíma- ritaútgáfu. Sala bóka dróst verulega saman í upphafi þessa áratug- ar, það mikið að ýmsir fóru að velta því fyrir sér hvort við værum að verða fyrrverandi bóka- þjóð. Þá þróun gátu menn ekki sætt sig við og tóku því bókaútgef- endur og aðrir hags- munaaðilar í bóka- greinum höndum sam- an um að gera átak til þess að snúa vörn í sókn. Árangur þess starfs hefur smám sam- an verið að koma í ljós með aukinni bóksölu og viðameiri bókaumfjöll- un. Frjáls verslun hafði sam- band við Ólaf Ragnarsson bókaútgefanda hjá Vöku- Helgafelli, ritara Félags íslenskra bókaútgefenda og formann Bóka- sambands Islands og spurði hann út í þessi mál. „í raun og veru er ekki um sér ís- lenska þróun að ræða,“ sagði Ólafur. „Svipað hefur verið að gerast í flest- um nágrannalanda okkar á síðustu árum. Bóksala fór að dragast saman á meginlandi Evrópu um miðjan síð- asta áratug og var í lægð um skeið en hefur aukist hröðum skrefum á undanförnum fimm árum. Samdrátt- urinn hófst nokkru siðar hér á landi og sama má segja um uppsveifluna. Hér á landi varð hún tveimur til þremur árum á eftir nágrannalönd- um okkar.“ Hvaða skýringar eru á þessari þróun? „Ljóst þykir að síaukin fjölmiðlun og vaxandi barátta um frítíma fólks hafi valdið mestu um samdráttinn og kannanir hafa reyndar staðfest það. Tilkoma myndbanda til almennings- nota sagði mjög til sín og í stað þess að grípa í bækur á kvöldin sögðust menn horfa á eftirlætismyndirnar sínar á myndböndum. Tölvunotkun á heimilum tók einnig sinn skerf af frístundum og aukið frelsi í útvarps- og sjónvarpsmál- um varð til þess að stöðv- um fjölgaði og úr fleiru varð að velja en áður til dægrastyttingar. Þessi tæknibylting varð örlitlu seinna hérlendis en í grann- löndunum en heltist hins- vegar yfir okkur af mun meiri krafti eins og vant er þegar Islendingar komast í feitt. Hér verður miklu meira æði í kringum nýj- ungar en víðast annars staðar enda erum við ein- staklega nýjungagjörn þjóð. En þessu fylgir einn- ig að bylgjurnar ganga hraðar yfir hérlendis og jafnvægi kemst tiltölulega fljótt á aftur.“ Nú virðist sem bókaút- gefendum hafi tekist að styrkja stöðu bókarinnar í öllu þessu umróti. Má ef til vill segja að bókin hafi ver- ið markaðssett að nýju? „Réttar væri ef til vill að segja að ný afstaða hafi verið tekin varðandi markaðsetningu bókarinn- ar. Ymsar nýjungar á sviði kynning- ar hafa verið reyndar og auglýsinga- stefnu breytt að nokkru leyti. Við gátum á ýmsan hátt nýtt okkur reynslu annarra þjóða við að snúa vörn í sókn og reyndum í því sam- 19

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.