Frjáls verslun - 01.05.1987, Side 30
Ferðamál
Andlitslyfting hjá
Arnarflugi
— millilandaflug í fimm ár
Nú í sumar hélt flugfélagið
Amarflug upp á fimm ára af-
mæli sitt í millilandaflugi til
Evrópu. Tæpum sex árum eftir
stofnun félagsins hófst flug á
þrjár evrópskar borgir; Ziirich,
Amsterdam og Diisseldorf, sem
nú hefur verið skipt á í stað
Hamborgar.
Afmælissumarið hefur flutt með
sér breytingar og útþenslu á þjón-
ustu og rekstri félagsins, sem allar
eiga að stefna í þá átt, að auðvelda
ferðalög viðskiptvina Amarflugs.
Fyrsta breytingin sem farþegar
verða varir við er að nú sér Amar-
flug sjálft um þjónustuna við brott-
för. í hinni nýju flugstöð Leifs Eiríks-
sonar sér starfsfólk Amarflugs um
innskráningu farþega og farangurs
við brottför frá Keflavík. Þessi þjón-
usta var áður í höndum Flugleiða, en
samningar náðust á milli keppinaut-
anna um breytingu þar á. Félagið
hefur einnig opnað bás á Schiphol í
Amsterdam þar sem gefnar em upp-
lýsingar um flug, gefnir út farseðlar
og aðstoð veitt farþegum við kom-
una til Hollands.
Önnur breyting hefur einnig orðið
á innritun farþega; breyting sem þeir
verða ekki beint varir við, en auð-
veldar ferðalagið og eykur öryggi og
valmöguleika í ferðalögum. Félagið
hefur tekið í notkun nýtt bókunar-
kerfi, sem tengt er rúmlega tíuþús-
und hótelum víðs vegar um heiminn.
Margar alþjóða hótelkeðjur em
tengdar þessu kerfi auk margra ís-
lenskra ferðaskrifstofa.
Umtalsverður viðauki við rekstur
Amarflugs er stofnun bílaleigu sem
hefur aðgreiðslu í nýju flugstöðinni.
Arnarflug er eitt af fjölmörgum
hluthöfum í þessu fyrirtæki, en hinir
hluthafarnir koma flestir úr röðum
þeirra sem tengjast ferðamálum eða
farþegaflutningum á einn eða annan
hátt. Heildar hlutafé er á milli 15 til
20 milljónir króna og til að byrja með
geta farþegar valið á milli 50 til 60
bifreiða. Hugmyndin er einnig að
nýta bílaleiguna til að auka mögu-
leikana á pakkaferðum sem fela í sér
flug og bíl.
Það sem hins vegar er mest áber-
andi og snertir flugfarþega beint, em
nýungar í þjónustunni um borð. Arn-
arflug hefur nú á boðstólum eins
konar vasaútgáfu af fríhöfn fyrir
millilandafarþega. Uppistaðan em
snyrtivömr og skartgripir, bæði fyrir
karla og konur auk ýmissa smáhluta,
s.s. ferðastraujárns, kmllubursta og
millistykki fyrir margs konar inn-
stungur. Markmiðið er að bjóða upp
á hluti sem geta komið sér vel á
ferðalögum, en vilja oft gleymast.
Verið er að gera tilraunir með hvort
þörf er á slíkri þjónustu, en einnig er
þama á ferðinni athyglisvert prófmál
sem lætur reyna á reglur um sölu á
tollfrjálsum varningi.
Arnarflug hefur um árabil stefnt
að því að fá sem flesta þætti þjónust-
unnar við farþega í sínar hendur.
Með aðstöðunni í Keflavík hefur inn-
ritunin endanlega verið færð úr
höndum Flugleiða og nú hefur Am-
arflug einnig komið sér upp sérstöku
eldhúsi til þjónustu við flugfarþega.
Um reksturinn annast Glóðin í
Keflavík og að sögn Halldórs Sig-
urðssonar hjá Arnarflugi hefur þessi
breyting mælst sérstaklega vel fyrir,
bæði hjá farþegum og starfsfólki.
Með tilkomu sérstaks eldhúss séu nú
möguleikar á að veita sérstaka þjón-
ustu þeim sem hafa sérstakar þarfir.
Halldór upplýsti einnig að innan tíð-
ar yrði mögulegt að hafa á boðstól-
um úrvals kampavín, hvítvín og
rauðvín, fyrir þá sem gerðu miklar
kröfur.
Erlendum ferðamönnum frá mark-
aðssvæðum Amarflugs í Mið-
Evrópu fjölgaði töluvert í júní í ár,
miðað við sama mánuð í fyrra. Frá
Vestur-Þýskalandi varð aukningin
13 prósent og frá Hollandi 9 prósent.
Amarflug hefur því fengið sér and-
litslyftingu í fleiri en einum skilningi.
30