Frjáls verslun - 01.05.1987, Side 40
Litiö á panel með Jóni Jónassyni verkstjóra í timburvinnslunni
einhverja nýja hluti til heimilisins.
Við munum því sinna almennum
neytendum í þessari verslun en ein-
beita okkur meira að fagmönnunum
í versluninni á Nýbýlaveginum."
Ef til vill hafa menn ekki gert sér
grein fyrir stærð BYKO en það eru
ekki mörg fyrirtæki á íslandi sem
velta yfir einum milljarði á ári.
BYKO var í 45. sæti á síðasta lista
Frjálsrar verslunar yfir 100 stærstu
fyrirtækin á Islandi og í skýrslum
Hagstofunnar um helstu vöruinn-
flytjendur á síðasta ári kemur í ljós
að BYKO er í 11. sæti yfir innflytj-
endur ef miðað er við verðmæti en í
10. sæti ef miðað er við magn. Heild-
arinnflutningurinn 1986 var
1.541.815 tonn að verðmæti 45.905
milljónir (Cif). Þar af flutti BYKO inn
rúm 22 þúsund tonn af vörum að
verðmæti 466,3 milljónir króna.
„Satt best að segja gerðum við okkur
ekki grein fyrir því hvað við vorum
með stóran hluta af innflutningnum
fyrr en við sáum þessar tölur í Hag-
tíðindum", sagði Jón Helgi.
— Hver er markaðshlutdeild
BYKO?
„Við vitum ekki sjálfir hver mark-
aðshlutdeild okkar er nákvæmlega.
Það fer líka eftir því við hvað menn
vilja miða. Við getum áætlað að
markaðshlutdeild okkar sé um 20%
en það er ef til vill betra að líta á
þessa tölu sem ágiskun frekar en
einhverja staðreynd.
I sjálfu sér er það ekki markmið
hjá okkur að ná ákveðinni markaðs-
hlutdeild. Aðalmarkmið okkar er að
vera áfram leiðandi byggingavöru-
verslun og taka virkan þátt í upp-
byggingu og þróun samkeppnishæfs
byggingaiðnaðar í landinu. Við vilj-
um gera þetta með því að leggja
áherslu á þjónustu, góðan starfs-
anda, aðbúnað og menntun starfs-
fólks. Ennfremur hagkvæmni og
góða afkomu í rekstri. Það má segja
að þessi áhersluatriði hafi hjálpað
okkur til að veiða stórir á markaðn-
um og stærðin hjálpar okkur síðan til
þess að ná frekari árangri.“
Skógrækt
Áhugamál Guðmundar í BYKO
fiskeldið er að verða drjúg aukabú-
grein hjá fyrirtækinu. BYKO er nú
að leggja öðru áhugamáli hans lið,
skógræktinni. Fyrirtækið hefur
keypt jörðina Drumboddsstaði í
Biskupstungum og þar verður meðal
annars aðstaða fyrir starfsfólk
BYKO. Ætlunin er að hefja skóg-
rækt á jörðinni til ánægju og útivist-
ar fyrir starfsfólk. „Það stendur okk-
ur ef til vill næst sem timbursölum
að styðja við bakið á skógrækt á ís-
landi“, sagði Jón Helgi. „Þetta verður
þó ekki atvinnugrein hjá okkur þótt
við trúum því að hægt sé að rækta
nytjaskóga á íslandi. Það þyrfti
ekki nema 3 þúsund ferkílómetra
skógarsvæði til þess að fullnægja
allri timburþörf þjóðarinnar og það
er ekki stærra svæði en svo að við
gætum auðveldlega orðið sjálfum
okkur nógir um timbur. En í þessu
veiðimannaþjóðfélagi, þar sem menn
vilja sjá árangur erfiðis síns strax á
stundinni, eru ekki margir sem
hugsa í áratugum og eru tilbúnir til
að leggja fram fé sem skilar ekki arði
fyrr en eftir nokkra áratugi", sagði
Jón Helgi.
Við látum spjallinu við Jón Helga
lokið með þessum orðum. Eflaust er
von til þess einhvem tíma í framtíð-
inni að hann þurfi ekki að fara út fyr-
ir landsteinana til þess að kaupa
timbur fyrir BYKO.
40