Frjáls verslun - 01.05.1987, Blaðsíða 43
Skömmu eftir að seinni
heimsstyrjöldinni lauk,
voru ung hjón að hefja
sinn búskap suður í Kefla-
vík og áttu lítið annað en
sitt góða skap, bjartsýni
og von, til að heyja lífsbar-
áttuna, sem sannarlega
var þyngri þá en nú. Árið
1947 eignuðust þau hjón
sinn fyrsta son, og á
þrettán árum voru syn-
irnir orðnir níu.
Þetta heiðursfólk, sem um ræðir
voru þau hjónin Ragnar Guðmundur
Jónasson frá Súgandafirði og Bjarn-
heiður Hannesdóttir úr Keflavík.
Ragnar kom ungur að vestan úr
hinni mestu fátækt, þekkti engan
syðra, en var fljótur að koma sér vel
meðal ókunnugra, kynntist konuefni
sínu og festi sitt ráð.
Aðeins 31 árs og 33 ára að aldri
voru þau hjónin foreldrar níu efni-
legra sona, en höfðu orðið fyrir þeirri
þungbæru sorg að missa einn þeirra
barn að aldri í bílslysi.
Fjölskyldan bjó lengst af í 60
fermetra húsnæði að Kirkjuvegi 4 í
Keflavík, litlu og snotru húsi, sem
var komið til ára sinna. Húsið var
síðast notað sem vinnuskúr fyrir
byggingamenn við Sparisjóðshúsið
nýja í Keflavík og var síðan rifið. Þar
hvarf æskuheimili þeirra Ragnars-
bræðra, sem hafa í dag haslað sér
völl í viðskiptalífinu og eiga þar góðu
gengi að fagna svo eftir er tekið.
FRJÁLS VERSLUN hitti þá bræð-
ur að máli nýlega til að kynna sér
lífshlaup þeirra. Áreiðanlega er það
óvenjulegt að af átta bræðrum skuli
sjö starfa sjálfstætt, og sá yngsti í
ábyrgðarstarfi hjá bræðrum sínum.
Okkur telst svo til að fyrirtæki
bræðranna hafi velt alls um 700 mill-
jónum króna á síðasta ári, og að hjá
þeim hafi starfað allt að 140 manns i
föstu starfi. Væri þetta eitt fyrirtæki
hefði það verið vel staðsett á lista
Frjálsrar verslunar yfir 100 stærstu
fyrirtæki landsins í fyrra.
Texti og myndir:
Jón Birgir Pétursson
Okkur lék forvitni á að heyra
meira um uppvöxt þeirra bræða í
Keflavík. Þeir sögðu okkur að í hús-
inu við Kirkjuveg hefði verið þröngt,
sofið á næstum hverjum ferþuml-
ungi, í kojum, sófum og dívönum,
jafnvel fjórir bræður í einu og sama
rúmi. Auk þeirra átti heimili hjá þeim
móðuramman, Arnbjörg Sigurðar-
dóttir, og auk þess stóð heimilið
ævinlega opið þeim sem minna
máttu sín. Þannig hafði einstæðings-
kona ein sem bjó í bænum við hinar
ömurlegustu aðstæður, alltaf húsa-
skjól hjá fjölskyldunni, þegar vetrar-
veðrin gerðust hörð. Og þar var alltaf
pláss til leikja og þar voru jafnvel
stundaðar smíðar, ef svo bar undir.
„Sjómennskan freistaði
mín alltaf, enda þótt ég
færi í húsasmíðina“, sagði
Ragnar Ragnarsson, 39
ára gamall, og elstur
þeirra Ragnarsbræðranna
í Keflavík. Hann starfaði í
14 ár við Slökkviliðið á
Keflavíkurflugvelli og
hætti þar 1979. Með starfi
sínu hafði hann ráðist í
trilluútgerð ásamt öðrum
og gerðu þeir félagar út
frá Sandgerði. Auk þess
var Ragnar eins og aðrir
ungir menn að koma þaki
yfir sig og fjölskyldu sína.
Ragnar segir okkur skemmtilega
sögu af því framtaki. Hann var orð-
inn þreyttur á byggingabaslinu árið
1968 samhliða öðrum störfum. Hann
hafi því hálft í hvoru tilkynnt að hann
mundi leggja bygginguna á hilluna í
bili, en kaupa trillu fyrir húsnæðis-
lánið! Hans betri partur mótmælti
þessu ekki og það gekk eftir, lánið
frá Húsnæðismálastjóm fór í að
kaupa trilluna, en eitthvað þurfti að
fresta því að flytja í nýja húsið um
En þeir bræður em sammála um
að þrengslin hafi ekki gert annað en
að auka á samheldni þeirra, þeir hafi
alla tíð verið miklir vinir og sam-
herjar og verði alla sína ævi. Þó em
þeir bræður næsta ólíkir í útliti og
hátt, hver með sinu snitti ef svo má
segja.
Þeim bræðrum ber saman um að
foreldrarnir hafi verið dugleg að inn-
prenta þeim að verða sjálfum sér
nógir í lífinu. Það er athyglisvert að
sjö þeirra fóru ungir í nám í bygging-
ariðnaðinum, og luku því og störfuðu
allir í byggingargreininni framan af,
enda þótt leiðir þeirra sumra ættu
eftir að liggja annað.
sinn. Með honum í þessari útgerð
var Jón Norðfjörð, sem nú er fram-
kvæmdastjóri Skipaafgreiðslu Suð-
umesja í Njarðvík.
Við heyrðum þá sögu að þeir
hefðu verið sérdeilis fisknir, og það
kom reyndar í ljós í þessari trilluút-
gerð félaganna, því strax um vorið,
tveim mánuðum eftir að þeir keyptu,
áttu þeir trilluna skuldlausa. Þeir
höfðu lent í einstakri aflahrotu,
fengu 27 tonn á einum mánuði, en
það mundi trúlega gera 1,3 milljónir
króna samkvæmt markaðsverði fisk-
markaðanna í dag. Og að sjálfsgöðu
stækkuðu þeir við sig um haustið,
seldu 5 tonna trilluna Birgi og
keyptu Bjarma sem var 7 tonn. Gekk
útgerðin mjög í haginn, en bátinn
seldu þeir 1973, þegar Ragnar gekk
til liðs við bræður sína tvo, Hannes
og Jónas og stofnaði byggingafyrir-
tækið Bræðraborg, sem byggði mik-
ið þau tvö ár sem það var við lýði, en
Jónas keypti það fyrirtæki af bræðr-
um sínum, sem hurfu til annarra við-
fangsefna.
Ragnar hélt sig við sjóinn sem fyrr
meðfram fastastarfinu á Vellinum.
Árin 1974 til 1976 leigði hann sér
báta, en 1978 keypti hann plast-
skrokk, sem hann byggði yfir um vet-
Ragnar Ragnarsson útgerðarmaður:
Keypti trillu fyrir
húsnæðismálalánið
43