Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1987, Side 51

Frjáls verslun - 01.05.1987, Side 51
Guðmundur sagði að hann hefði keypt af þeim Víðisbræðrum rekstur þeirra í Starmýri að loknum talsverð- um samningaviðræðum. Um kaup- verðið vildi hann ekki ræða, það hefði verið samið um að viðra það ekki, en að sjálfsögðu væru upplýs- ingar um verðið hjá skattayfirvöld- um. „Ég varð að selja allt mitt, — átti reyndar ekkert eftir af eignum annað en einn bíl, sem kom reyndar ekki til af góðu, því að ég gat ómögulega losnað við hann, því enginn kaup- andi fékkst. I staðinn á ég þessa eign hérna, þúsund fermetra verslanahús- næði á tveim hæðum, þetta er mikil og góð eign. Auðvitað vissi ég að þetta gæti orðið erfitt. En ég verð þó að segja að þetta hefur gengið vonum framar. Viðskiptavinunum hefur fjölgað mjög verulega. Frá því í mars 1986 til sama mánaðar í ár, hafði veltan aukist um 90% hjá mér, svo ég get vel við unað, því verðbólgan á þessu tímabili var ekki nema 25%“. Guðmundur sagði að hann legði mjög ríka áherslu á gott vöruval í búðunum, ekki síst á fallegt kjötborð og fyrsta flokks kjöt. Sagði hann að Ragnar Sigurðsson kjötiðnaðarmað- ur verslunarinnar ætti mikið hrós skilið fyrir stjórn kjötdeildarinnar. Þá sagði Guðmundur að mikil áhersla væri lögð á hreinlegt og snyrtilegt umhverfi. Verslunin aug- lýsir talsvert, einum um of í fyrra, sagði Guðmundur. Sagðist hann núna vera hálf ráðvilltur, svo erfitt væri að velja fjölmiðla til að flytja auglýsingarnar. Hjá Versluninni Starmýri starfa 18 manns í föstu starfi, 14 í aðalbúð- inni, en 3 í útibúinu í Árkvöm. Versl- unarstjóri er Margrét Runólfsdóttir, en hún var áður hjá Víði og öllum hnútum kunnug. Þá sér Sigrún Kristjánsdóttir, eiginkona Guðmund- ar, um bókhald verslananna og hefur sér til fulltingis tölvu, sem gerir kaupmanninum mögulegt að fá uppgjör mánaðarlega, sem er ekki lítið atriði í rekstri sem þessum. Guðmundur sagði að margar nýj- ungar væru að brjótast í honum, m.a. sú að afleggja lagerhald, en koma vörum fyrir jafnóðum og þær berast í hillum í versluninni. Einnig stefndu þeir Jónas og Hannes, bræður hans að því að samræma innkaup verslan- anna meira en gert hefur verið, en verslanirnar hafa í mörgum tilfellum keypt inn saman, báðum til hags- bóta. Guðmundur og Sigrún fluttu til Reykjavíkur eftir að þau gerðust hús- bændur í Starmýrinni, áður hafði Guðmundur ekið fram og til baka í bílasöluna í Skeifunni. „Það var Hafnargatan í Keflavík iðar daginn langan af lífi og athafnagleði. Þetta er aðalgata Suðumesjabúa með tugi verslana og þjón- ustustofnana. Að Hafnar- götu 17 á efri hæð hittum við að máli einn Ragnars- bræðra, Sigurð 27 ára, en hann rekur þaraa Eigna- miðlun Suðurnesja. Húsið var áður lögreglustöð skrítið fyrst í stað að vera utan Kefla- víkur, en vandist vel. Annars er sam- keppnin hérna í Reykjavík meiri en nóg, en þó barnaleikur miðað við það sem bræður mínir þurfa að kljást við suðurfrá.“ Við spurðum Guðmund að lokum um áhugamálin. „Þau eru hin sömu hjá okkur öll- um, bræðrunum, vetrarferðir á jepp- um, og skíðaiðkun". bæjarins, en Hannes Ragnarsson, sem stofnaði og átti fasteignasöluna, innréttaði og lagfærði húsið þannig að af því er mikill sómi í dag. „Það er allt á uppleið núna“, sagði Sigurður Ragnarsson í spjalli við Frjálsa verslun. „Það var samdráttur í tvö ár, hann kann að vissu marki að vera varanlegur, en eftir að nýja lánakerfið var tekið upp, kom mikill og góður kippur í söluna. Ég finn að Sigurður Ragnarsson fasteignasali: Auðvitað á milljóna samningur að vera ritvillulaus Sigurður Ragnarsson fasteignasali og Valdís Inga Steinarsdóttir. 51

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.