Frjáls verslun - 01.05.1987, Blaðsíða 56
Óskafyrirtæki markaðsstjórans er
að sjálfsögðu eins og lýst er í lið 3.
Þar má helst ætla að hann komi að
raunverulegum notum við heildar-
skipulagningu markaðsstarfsemi fyr-
irtækisins og að hann hafi nægileg
áhrif innan þess til að virka sem
„prímusmótor“ í starfseminni og
stuðla að samhæfðri og markvissri
starfsemi fyrirtækisins í markaðs- og
framleiðslumálum.
Hlutverk
markaðsstjóra
Skoðanir voru nokkuð skiptar á
því hvert hlutverk markaðsstjóra
ætti að vera. Töldu sumir að í raun
væri allt tal um markaðsstjóra hé-
gómi, því hann væri oftar en ekki
einungis silkihúfa upp af sölustjóra
og hefði ekkert annað hlutverk en að
naga blýanta og flækjast fyrir störf-
um sölumanna. Voru nefnd dæmi
um slíkt, þar sem markaðsstjóri
hafði starfað um nokkurra mánaða
Töldu sumir
aö markaöstjóri
væri aöeins
silkihúfa
upp afsölustjóra
skeið, án þess að um hann væri vitað
hjá viðskiptavinum fyrirtækisins.
Hér væri oft um að ræða einhverja
menntaða viðskiptafræðinga sem
aldrei hefðu nálægt sölustörfum
komið og næðu engum tengslum við
sölustarfsemi fyrirtækjanna.
Flestir voru þó á því að hlutverk
markaðsstjórans væri bæði mikil-
vægt og viðamikið ef rétt væri á mál-
um haldið. Voru í því sambandi eink-
um 3 meginhlutverk nefnd:
1. Markaðsstarfsemi. Yfirstjóm
markaðsstarfsemi fyrirtækisins. í
því felst ekki einungis sölumennska,
heldur einnig stöðugar rannsóknir á
markaðnum, samkeppnisgreining og
yfirleitt allt það sem aflar og nýtir
fullkomna þekkingu á markaðnum
og þörfum hans. Hér er oft um viða-
mikla starfsemi að ræða, einkum í
stórum fyrirtækjum, þó að á íslandi
séu verkefni af þessu tagi ekki enn
talin sjálfsagður hlutur.
2. Stefnumótun. Þar sem starf-
semi markaðssinnaðra fyrirtækja
tekur fyrst og fremst mið af mark-
aðnum og samkeppninni, hefur
markaðsstjórinn mikilvægu hlut-
verki að gegna í stefnumótun fyrir-
tækisins, þar sem hann býr yfir mik-
illi þekkingu á grundvelli slíkrar
stefnumótunar, ef vel á að vera.
Flestir töldu að þetta hefði í för með
sér, að markaðsstjórinn ætti að vera
hluti af yfirstjórn fyrirtækisins.
3. Samhæfing. Talið var að mark-
aðsstjórinn væri einn af fáum starfs-
mönnum fyrirtækja sem skipulags-
lega starfar í allar áttir. Hann sam-
ræmir sjónarmið hinna ýmsu deilda
fyrirtækisins og þarf því oft að ná
góðu sambandi, ekki einungis við
yfirmenn og undirmenn, heldur
einnig stjórnendur á sama skipulags-
stigi. Hann þarf að hafa óformleg
völd að þessu leyti, til að slík sam-
hæfing heppnist. Slík völd, eða öllu
heldur áhrif, verður markaðsstjórinn
að skapa sér sjálfur innan fyrirtækis-
ins með því að afla stuðnings á sem
flestum sviðum fyrirtækisins.
Staða innan
skipulagsheildar
Talsverðar umræður urðu um
hvar staðsetja ætti markaðsstjórann
innan skipulags fyrirtækja. Einkum
voru skiptar skoðanir á því hvort
hann ætti að hafa mannaforráð, þ.e.
að stjóma markaðsstarfsemi fyrir-
tækisins, eða hvort hann ætti að vera
eins konar stoðdeild með sérfræði-
stimpil.
Þegar málin voru rædd í ljósi þess
sem áður hefur komið fram, varð all-
VEISLCI-
ELDHCJS
SKÚTAHRAUNI 17d
220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 53706
Gæða-mat sf. útbýr mat fyrir hvers
konartækifæri, alltfrá gómsætum
snittum upp í Ijúffengan og glæsilegan
veislumat.
Hitabakkar fyrir fyrirtæki,
sendingarþjónusta.
Smurt brauð og snittur, brauðtertur,
heitur veislumatur og köld borð.
Tökum einnig að okkur að sjá um
veislur, bæði stórar og smáar.
Öll framleiðsla í háum gæðaflokki í
umsjá færustu matreiöslumanna.
Fljót og góö þjónusta á afar hagstæöu
verði.
Kristinn
Jóhannesson
heimasími — 53618
56