Frjáls verslun - 01.07.1988, Síða 7
TÆKNI OG ÞJÓNUSTA
í ÞÍNA ÞÁGU!
Fyrir um hálfri öld, er Einar J.
Skúlason hóf verslunarrekstur
í Reykjavík, voru hvorki tölvur né
rafdrifnar rit- eða reiknivélar á
boðstólum. Styrjaldarástandið á
meginlandi Evrópu varð sífellt ai-
varlegra og skipéisamgöngur til ís-
lands því erfiðar. Fjárhagur ís-
lenskra heimila var bágur sem og
efnahagur landsins í heild. Það
þurfti því mikla áræðni og fram-
sýni til að stofna og reka fyrirtæki
í þá daga.
Með framsýnina að leiðarljósi
hefur fyrirtækið Einar J.
Skúlason siglt í gegnum súrt og
sætt, kreppur sem breytingar. En
þrátt fyrir ótrúlega örar tækni-
breytingar og mikla framþróun á
verslunarsviðinu er einn þáttur í
starfsemi fyrirtækisins sem ekki
hefur breyst. Sá þáttur hefur verið
einn lykilþátturinn í velgengni
fyrirtækisins gegnum tíðina,
nefnilega vönduð og góð þjónusta.
Einar J. Skúlason hf. býður ein-
ungis fyrsta flokks vörur og
þjónustu sem þróast hefur í sam-
skiptum við ánægða viðskiptavini
í hálfa öld. Meira en 60 sérþjálfað-
ir starfsmenn leitast við að þjóna
sem best hinum fjölmörgu við-
skiptavinum fyrirtækisins. Ef þú
þarft á tölvum, skrifstofutækjum,
hugbúnaði, kerfisþróun eða
rekstrarvörum að halda, er Einar
J. Skúlcison hf. fyrirtæki sem þú
getur lagt traust þitt á. Einkunnar-
orð okkar eru: Tækni og þjónusta
í þína þágu!
Hjá Einari J. Skúlasyni hf. fást öll tæki og rekstrarvörur til nútima skrifstofuhalds s.s.
tölvur, jaðartæki, hugbúnaður, ritvélar, reiknivélar, Ijósritunarvélar og búðarkassar.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
28.089 augljós