Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 25
fækkun starfsfólks. Var um mik-
inn niðurskurð að ræða?
Þeir félagar líta hvor á annan
og Gunnar verður fyrir svörum.
„Það er ekki sársaukalaust að
verða að segja upp góðu fólki,“
segir hann alvarlegur í bragði.
„Þegar við hófum sameiningu
starfseminnar í júlí síðastliðnum
voru fastir starfsmenn fyrtækj-
anna 91 að tölu. í dag vinna 73
starfsmenn hjá fyrirtækinu.
Starfsfólkið var frá upphafi með-
vitað um að þessar breytingar
stóðu fyrir dyrum og eðlilega
skapaðist við það óvissuástand
og spenna. Við reyndum að fara
eins mjúklega í þetta og kostur
var. Frá því í vor var t.d. var ekki
ráðið í stöður þeirra sem hættu.
Við reyndum að vera sem mest
með fólkinu og ræða málin. Eftir
að menn höfðu áttað sig á breyt-
ingunum og að við stæðum sterk-
ari eftir kom upp mikill baráttu-
hugur meðal fólksins. Það er
merkileg reynsla að þegar maður
er búinn að ýta þessu af stað er
eins og þetta reki sig sjálft. Við
settum okkur dagsett vinnuplan
fyrir breytingarnar og í öllum tilvik-
um höfum við verið 1-2 vikum á
undan áætlun. En því miður urð-
um við að segja upp mörgu góðu
fólki og það var sannarlega ekki
sársaukalaust af okkar hálfu —
en því miður ekki umflúið."
— Nú er Ijóst að sameiningin
hlýtur að færa hinu nýja fyrirtæki
álitlegan hóp nýrra viðskipta-
vina?
„Víst er leikurinn gerður til að
ná til viðskiptavinanna og halda
þeim viðskiptum með minni her-
kostnaði," segir Erling. „Það ríkir
mikill órói og uppstokkun í við-
skiptalífinu og eflaust vildu margir
vera í aðstöðu til að geta hagrætt
og náð meiru út úr rekstrinum."
„Það getur hins vegar verið afar
erfitt fyrir eitt fyrirtæki að skera
niður og stokka upp reksturinn,"
bætir Gunnar við. „Hagkvæmnin
við sameiningu sem þessa er að
þá skapast möguleikar til að
dreifa verkum á fleiri hendur.“
Erling: „Eins má segja að tím-
inn hafi í raun unnið með okkur.
Tækniþróun undanfarinna ára
t.d. í rit og reiknivélaviðgerðum
hefur dregið mjög úr vinnuálagi.
Vélar eru að verða meira raf-
eindadrifnar og viðgerðir á þeim
auðveldari og fljótunnari. Hjá
Skrifstofuvélum h/f var farið að
bera á minnkandi verkefnum á
því sviði. Því voru þau verkefni
sem við fluttum með okkur við
sameininguna kærkomin viðbót
og atvinnutrygging fyrir starfs-
mennina."
dafnaði en það myndaðist aldrei
samstaða á milli hennar og skrif-
stofudeildarinnar — þvert á móti
má segja að þar hafi ríkt togstreita
og sambandsleysi."
Gunnar: „Það fyrsta sem við
gerðum þegar við tókum við fyrir-
tækinu var að leggja niður tækni-
deildina. Það hreinsaði loftiðtölu-
vert. Við lögðum niður þessa
hefðbundnu tölvudeild og fluttum
sölufólkið saman með öðru sölu-
fólki og tæknifólkið hingað í
tæknideild Gísla J. Johnsen sf.“
Mjög góö aðstaöa er hjá Tölvuskóla Gísla J. Johnsen h.f. á Nýbýlavegi
— Nú hefur því verið fleygt að
Skrifstofuvélar h/f hafi ekki náð
að fylgjast með hinni hröðu þróun
tölvutækninnar — helst úr lestinni
ef það má orða það svo.
„Hjá fyrirtækinu var margt vel
gert,“ heldur Erling áfram. „En
það má segja að of skörp skil hafi
verið á milli tölvustarfseminnar
annars vegar og hefðbundnu
starfseminnar hins vegar.
Þar var ekki fyrir hendi þetta
hópefli sem ríkti hjá Gísla J.John-
sen s/f.
Hjá Skrifstofuvélum h/f kemur
tölvuþátturinn inn í gróið og mót-
að umhverfi. Hin nýja deild óx og
„Og hugbúnaðardeild Gísla J.
Johnsen s/f þjónustar þá við-
skiptavini sem kaupa tölvur hjá
Skrifstofuvélum s/f, bætir Erling
við.
„Skömmu eftir að við tókum við
Gísla J. Johnsen s/f tókum við þá
ákvörðun að vera ekki með starf-
andi hugbúnaðardeild, þ.e.a.s. í
hönnun og framleiðslu hugbún-
aðar,“ segir Gunnar. „Það er bæði
gífurlega fjárfrekt dæmi og
áhættusamt. Viðtókum þá stefnu
að leggja áherslu á að mennta
okkar hugbúnaðarfólk og á sölu
og þjónustu við viðskiptavini okk-
ar. Sala í svona fyrirtæki er sér-
25