Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 75
í ÖRSTUTTU MÁLI
Tölvölur h.f. I Reykjavík hefur sett á
markaðinn nýtt stýrikerfi fyrir PC tölvur
sem það nefnir AXEL. Kerfið er byggt
upp með valmyndum og getur þannig
auðveldað fólki notkun PC tölvu, t.d.
þeirra sem vinna við ritvinnslu og þurfa
að vinna með margar skrár-.
Ef þú ert svo heppinn að eiga olíuskip
bundið við bryggju einhver staðar ertu ef
til vill miklu ríkari en þú heldur.
Svokallaður O-list yfir verð á olíuskipum
sýnir að verð þeirra hefur hækkað um
hvorki meira né minna en 400% á
síðastliðnum 2 árum. Hækkunin gildir
fyrst og fremst fyrir stór olíuskip, 60-300
þúsund tonna skip, sem hafa hækkað í
verði um 300-400% á tímabilinu frá því í
janúar 1986 til nóvember 1988. Stærri
farmskip hafa einnig hækkað um og yfir
100%-.
Breytingar hafa nýlega orðið á stjórn
og eignarhlutföllum hjá íslenskri
forritaþróun sf. Nýr eigandi hefur komið
inn í fyrirtækið, Hálfdán Karlsson
viðskiptafræðingur, sem jafnframt hefur
tekið við starfi framkvæmdastjóra af Erni
Karlssyni. Örn Karlsson tekur nú viö
stjórn tæknimála hjá ÍF. Hálfdán hefur
m.a. starfað hjá DEC í Bandaríkjunum,
hjá tölvudeild KÓS í Reykjavík og hjá
Olíufélaginu h.f. Hálfdán er kvæntur
Ellen Tyler, arkitekt-.
T E R N A T I 0 N A L
-HUGBÚNAÐUR.
MUNIÐ AÐ ENDURNÝTA
TURBO
PASCAL
u
l&K&HU
wb
mu*.
‘••u,
B 0 R
ItHO
Nú getið þið sem eigið eldri úigáfur af
Ðorland hugbúnaði lagt leið ykkar í
Tölvutækni Hans Petersen hf að
Grensásvegi 16 og endurnýjað safnið
með litlum tilkostnaði.
Þið komið með gömlu útgáfuna af forrit-
inu greiðið lítilræði í milli og fáið í stað-
inn nýjustu útgáfu af Borland hugbún-
aði.
Notfærið ykkur frábært verð og
þjónustu!
TOLVUTÆKNI
Hans Petersen hf. Grensásvegi 16
75