Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 23
Erling Ásgeirsson fyrir framan hús Skrifstofuvéla h.f. í Reykjavík
búi. Fyrirtækið, sem byggt var
upp í kringum hefðbundinn skrif-
stofubúnað, missti af lestinni, ef
svo má að orði komast, þegar
tölvuvæðingin hélt innreið sína.
Kunnugir halda því reyndar fram
að þeir félagar hafi byrjað fyrir
neðan núllið þegar þeir tóku við
fyrirtækinu. En hvernig sem því
var varið þá létu þeir Erling og
Gunnar það ekki aftra sér frá því
að stokka upp og leggja nýjar
grunnlínur í takt við breyttar þarfir
og kröfur þjóðfélagsins.
Árið 1984 bætti IBM fyrirtækið
við tveimur nýjum söluaðilum á
íslandi. Annar þessara aðila var
Gísli J. Johnsen s/f. Ef til vill má
segja að þar með hafi verið mörk-
uð sú stefna fyrirtækisins að
leggja höfuðáherslu á sölu og
þjónustu á tölvubúnaði.
Árið 1985 fluttu þeir félagar
starfsemina í nýtt og glæsilegt
húsnæði við Nýbýlaveg í Kópa-
vogi. Ef marka má hið gamla ís-
lenska orðtæki að glöggt sé gests
augað, verður ekki annað sagt en
að svo virðist sem vel hafi tekist til
hjá þeim félögum á þessum fáu
árum sem liðin eru frá því að þeir
tóku við fyrirtækinu.
Eflaust hefur mörgum þótt sem
þeir Erling og Gunnar hefðu nóg
með að koma Gísla J. Johnsen s/f
á fastan grunn og víst er að ekki
skorti hrakspár og heldur þóttu
þeir félagar fámálir um fyrirætlan-
ir sínar.
Það vakti því bæði almenna eft-
irtekt og undrun þegar Ottó A.
Michelsen seldi eigendum Gísla
J. Johnsen s/f fyrirtæki sitt Skrif-
stofuvélar h/f í september 1987.
Höfðu þá nokkrir hinna vantrúuðu
á orði að þar hefðu tveir haltir
klárar sameinast í einn draghalt-
an.
Líkt og Gísli J. Johnsen s/f er
Skrifstofuvélar h/f gamalt og gró-
ið fyrirtæki og líkt og hið fyrr-
nefnda byggt upp í kringum hefð-
bundnar skrifstofuvélar og bún-
að. Fyrirtækið var stofnað af Otto
A. Michelssen árið 1946. Árið
1950 fékk Ottó umboð fyrir IBM á
íslandi. Reyndar var IBM alls
staðar rekið í gegnum eigin útibú
en erlendur fyrirtækjarekstur var
lögum samkvæmt ekki leyfilegur
á Islandi. Árið 1967 klofnar fyrir-
tækið og IBM kaupir þann hluta
Skrifstofuvéla h/f sem sá um
rekstur þeirra tækja og fékk þar
með leyfi til þess að setja upp
útibú á íslandi samkvæmt sér-
stökum lögum. Ottó A. Michelsen
starfaði áfram sem forstjóri IBM
og stjórnarformaður Skrifstofu-
véla h/f þar til hann lét af störfum
sökum aldurs árið 1982. Skrif-
stofuvélar h/f seldi hann svo, eins
og áður segir, þeim Erling Ás-
geirssyni og Gunnari Ólafssyni
fimm árum síðar.
Þó svo að Skrifstofuvélar h/f
væri byggt upp í kringum hefð-
bundið skrifstofuhald var tölvu-
23