Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 52
TÆKNI
andi líkur á því að skjöl týnist eða
skemmist. í myndvinnslukerfi
geta tugir starfsmanna fyrirtækis
skoðað sama skjalið á sama tíma
án þess að bætt sé við einni ein-
ustu pappírsörk þess vegna. Þá
skiptir einnig miklu máli að nú
gerir myndvinnsla kleift að fella
saman myndir og ritmál í eitt og
það nærri fyrirhafnarlaust.
í þessu samhæfða kerfi er
skjalið lagt í myndara (skanner)
sem les það inn á opískan disk
sem tölvustöðvar nota síðan eins
og hverja aðra miðlæga gagna-
geymslu. Optískur diskur getur
staðið skil á einni ákveðinni
mynd, sem geymd er á meðal
milljóna annarra mynda, á innan
við 20 sekúndum og sú mynd get-
ur eins verið af bréfi eins og
hverju öðru skjali með ritmáli og/
eða myndum. Þessi tækni þýðir
að „rafeindaskjalageymsla" er
raunhæfur möguleiki en ekki fjar-
lægur draumur. í Wang mynd-
vinnslukerfinu er unnt að hafa
gagnasafn á optískum diskum
samhliða gagnasafni á örfilmum í
einu samhæfðu tölvukerfi og er
tölvupóstur einn þáttur þess. Tök-
um dæmi um hvað þessi tækni
hefur í för með sér fyrir starfs-
menn fyrirtækja: Sölustjóri þarf
að kynna sölumönnum nýtt tæki.
Hann notar tölvustöð til að skrifa
texta bréfs með ritvinnslu, sækir
mynd eða teikningar af nýja tæk-
inu í gagnageymslu og lætur tölv-
una setja inní bréfið, hann sækir
verðútreikninga í gagnageymsl-
una og skoðar þá og setur verð-
skrá inní bréfið, sækir síðan lista
yfir sölumenn og sendir bréfið til
þeirra með tölvupósti. Hann getur
skoðað öll þessi skjöl og myndir
samtímis í sjálfstæðum gluggum
á tölvuskjánum. Enginn pappír er
notaður við þessa upplýsinga-
miðlun.
Samhæfð myndvinnsla á borð
við Wang IIS hentar ýmsum fyrir-
tækjum og stofnunum betur en
öðrum og er skýringin á því fólgin í
eðli þeirrar starfsemi sem þau
stunda. Sem dæmi má taka
tryggingafélag. Við uppgjör tjóna
þarf að safna saman ýmsum
gögnum svo sem tjónaskoðunar-
skýrslum, verðskrám, reikningum
frá ýmsum aðilum o.fl. í sam-
hæfðu myndvinnslukerfi eru öll
þessi gögn tiltæk og hægt að
skoða þau og nota á sama tölvu-
skjá. Ekki þarf að byrja á að finna
hvar skjölin eru geymd, fá afrit af
þeim og geyma þau síðan eða
eyða í pappírstætara. Starfsmað-
ur tryggingafélags getur t.d. af-
greitt mál í gegnum síma nánast
samtímis með þessu móti.
í bankakerfinu er pappírsflóðið
ennþá eitt helsta vandamálið
þrátt fyrir tölvuvæðingu. Pappírs-
kostnaður og pappírsvinna er
drjúgur kostnaðarliður í rekstri
banka og sífelt er unnið að hag-
ræðingu í því skyni að halda skrif-
ræðiskostnaði í lágmarki. Vegna
þeirra ströngu krafna sem gilda í
bankastarfsemi og varða marg-
vísleg öryggismál og endurskoð-
un hefur reynst hægara sagt en
gert að draga úr pappírsnotkun-
inni. Með samhæfðri mynd-
vinnslu í bönkum skapast nýir
möguleikar á að draga verulega
úr pappírsnotkun og auka gagna-
og vinnsluöryggi samtímis.
Sem dæmi um þá hagræðingu
sem verður möguleg í bankakerf-
inu með myndvinnslu má nefna
Út er komin hjá Heildi á Akur-
eyri ný kennslubók um ritvinnslu-
kerfið Word eftir Níels Karlsson
sem er einnig höfundur eldri bók-
ar um MS-DOS/Word 2.0 auk
þess sem hann er einn höfunda
íslensku kennslubókanna um
IBM stoðirnar; Rit-, Skrá-, Mynd-,
Skýrslu- og Teiknistoð.
Eins og segir í formála nýju
bókarinnar kom Word 3,0 í kjölfar
Word 2.0 og síðar 3.1. Þótt breyt-
ingar séu ekki stórvægilegar á
milli þessara útgáfa urðu þær
þeim mun meiri með útgáfu 4.0.
Ritvinnslan er nú mun þjálli og
hraðvirkari en áður auk þess sem
bætt hefur verið við hana ýmsum
nýjum möguleikum. Sem dæmi
að ekki verður lengur nauðsyn-
legt að safna saman ávísunum
frá gjaldkerum, flokka þær, leggja
saman og sendatil ávísanaskipta
til Seðlabanka. í myndvinnslu
bregður gjaldkerinn ávísuninni í
myndara og þar með er hún kom-
in sjálfkrafa inn í uppgjör. Álag á
megintölvur bankanna mun
minnka verulega þegar starfs-
menn þurfa ekki lengur að afla
upplýsinga úr miðlægu gagna-
safni en geta fengið mynd af við-
komandi skjali á útstöð. Mynd-
vinnslan mun geta sparað bönk-
unum mikinn kostnað vegna dýrs
geymsluhúsnæðis fyrir pappírs-
gögn og sumum þeirra allan
kostnað vegna örfilma. Þá getur
starfsmaður banka, í einu vet-
fangi, fengið mynd á skjá af eigin-
handarundirskrift (sýni á korti) til
að ganga úr skugga um að undir-
skrift skjals sé ófölsuð og með
myndvinnslukerfinu er hægt að
tryggja að engin ávísun, á reikn-
ing sem hefur verið lokað, verði
innleyst nokkurs staðar nokkrum
mínútum eftir að reikningi hefur
verið lokað. Þetta eru aðeins örfá
dæmi um væntanlegt hagræði af
þessari nýju tækni. Bankamenn
gætu nefnt tugi dæma til viðbótar.
má nefna möguleika sem þekkj-
ast í útgáfukerfum (Desk-Top-
Publishing eða DTP) en þeir virð-
ast ætla að halda innreið sína í
ritvinnslukerfi framtíðarinnar.
í þessari bók er Word aðalvið-
fangsefnið en það sem snýr að
MSDOS stýrikerfinu sérstaklega
er fellt inn í viðauka. Þá er það
athyglisvert atriði í sambandi við
þessa bók og notkun hennar við
kennslu að kennarar geta fengið
diskling með öllum skrám sem
vísað er til í bókinni. Sem dæmi
um slíkar skrár má nefna lausnir
verkefna, útlitssíður og fjölva.
Bókin er 176 blaðsíður. Brotið
er 169x239 mm (þykkt 13 mm).
Sá hluti bókarinnar sem fjallar
NÝ BÓK UM MS-W0RD
52