Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 55
Boö frá hönnunarkerfi eru flutt yfir í stýritölvu sem stjórnar filmuskeranum sem einnig getur unniö sem tölvuteiknari.
Ljósmynd: Kristján. E. Einarsson.
fara með einstaka stafi: Hægt er
að taka ákveðna stafagerð og
umteikna stafina að vild, breyta
t.d. yfirlöppun stafafótar, en
þannig mætti endalaust halda
áfram. Eigi að setja ramma utan-
um stafi eða klysju nægir að velja
gerð rammans og þykkt með
hnappaborðinu, merkja fyrir einu
horni hans með hnitaranum og
ramminn birtist allur umsvifa-
laust.
Á hvaða hönnunarstigi sem er
má vista teikningu til geymslu
sem fullunnið verk, hálfunnið eða
sem tilbrigði. Þá mynd sem er á
skjánum má hvenær sem er
prenta með venjulegum tölvu-
prentara. Eigi að flytja hönnun-
ina yfir á filmu er stærðin ákveðin í
efnisskránni. Tölvan reiknar þá
jafnharðan út hve mikið efni t.d. í
fermetrum þarf til verksins. Efnið
er lagt út á borð tölvuteiknarans
sem teiknar viðfangsefnið eða
sker út. Þannig má t.d. fullvinna
mynd sem er nokkrir fermetrar á
nokkrum mínútum.
Sé um fleiri en eitt verk fyrir
sama verkkaupa að ræða safnar
tölvan saman kostnaðareining-
um, þ.e. tölvutíma, hönnun og
efni, og getur þannig skrifað út
sundurliðaðan reikning í verklok.
NÝJAR VÍDDIR
Með þessum búnaði má segja
að nýjar víddir hafi lokist upp.
Stærð þeirra verka sem frá tölvu-
teiknaranum koma í einu lagi og
án samskeyta getur verið allt að
1,2 metrar á breidd og meira en
100 metrar á lengd. Með þessari
tækni er t.d. hægt að gera stafi
sem eru allt að 2,4 metrar á hæð
án samskeyta. Sama gildir um
fyrirtækjamerki t.d. þegar merkja
á stóra gáma, flutningavagna eða
þess háttar.
Sem dæmi um þau verkefni
sem má auðvelda með þessum
búnaði nefnir Ásgeir að hægt sé
að teikna upp mynd sem eigi að
mála á húsvegg í fullri stærð og
gata hana eftir sérstökum regl-
um. Þannig geti þeir sem eiga að
mála myndina merkt fyrir helstu
kennileitum og tryggt að öll hlut-
föll myndarinnar skili sér óaðfinn-
anlega. Stærsta mynd sem þann-
ig má teikna gæti verið 963 fer-
metrar.
Kosturinn við að geta gert allt
að 2,4 metra háa stafi á límfilmu
án samskeyta er sá að miklu
minni hætta er á að slíkar merk-
ingar gefi sig t.d. þegar þær eru
notaðar utanhúss í íslenskri veðr-
áttu. Það er því ekki undarlegt
þótt stór hluti af verkefnum
Undralands sé merking og
skreyting sendi- og flutningabíla.
Þar má nefna Kók-bíla Vífilfells,
flutningavagna og sendibíla Arn-
arflugs, Sveins bakara, Frjáls
framtaks h.f., Smjörlíkis h.f.,
Sanitas...... og þannig mætti
lengi upp telja.
55