Frjáls verslun - 01.07.1988, Qupperneq 60
TÆKNI
HIN LITLA, UÚFA Z88
Stærsti gallinn við flestar þeirra
fartölva sem nú eru á markaðin-
um er sá að þær eru of stórar og
þungar til að fólk taki þær með sér
nema ítrasta nauðsyn krefji. Þá er
von að spurt sé hvað þarf rit-
vinnslutölva að vera létt til að geta
kallast hin fullkomna lausn?
Hönnuður Z88, breski hugvits-
maðurinn Sir Clive Sinclair, segir
að slík tölva þurfi að komast fyrir í
skjalatösku af meðalstærð. Far-
tölvan Z88 fullnægir þeirri kröfu.
Eins og Ijóst má vera er hönnun
fartölvu byggð á einhvers konar
málamiðlun. Tæknilegum eigin-
leikum og vinnslugetu þarf að
fórna til að halda þyngd og fyrir-
ferð í lágmarki. Þess vegna reynir
hönnun þessara tækja mjög á
hugvit - snjallar tæknilegar lausn-
ir er það sem málið snýst um.
Það hefur verið sagt, til að lýsa
þróuninni í tölvutækni og um leið
stöðnuninni sem ríkti í bílahönnun
fyrir nokkrum árum, að hefði bíll-
inn þróast til jafns við míkrótölv-
una sl. 30 ár vægi hann núna hálft
kg, kostaði tíkall, eyddi 50 kW á
ári og færi með Ijóshraða.
Z88 frá Cambridge Computer
vegur innan við kg og er að fyrir-
ferð nákvæmlega A4, um 2 sm á
þykkt. Hún er byggð á Z80 ör-
gjörvanum sem upphaflega var
þróaður af Zilog fyrir CP/M stýri-
kerfið. í stað þess að nota diskl-
inga notar Z80 minniskubba á
stærð við hálfan eldspýtnastokk
til að geyma vinnsluminni (RAM)
og lesminni (ROM). Á lesminnis-
kubbi er stýrikerfið og ýmis með-
fylgjandi hugbúnaður, 128 kb.
Skjárinn er ekki stór, reyndar
aðeins gluggi sem sýnir 6-8 línur í
senn, 80 stafi í hverri, blekskjár
(SuperTwist) án baklýsingar. Þótt
skjárinn sé ekki stór er hann
Sir Clive Sinclair er þekktur fyrir aö fara
ekki troönar slóðir. Þaö hefur hann ekki
heldur gert við hönnun Z88.
ágætt dæmi um þær snilldarlegu
lausnir sem einkenna þetta tæki.
Til hliðar á skjánum birtast ýmsar
upplýsingar svo sem um skipanir
og vinnslustöðu auk þess sem
sérstakur gluggi sýnir útlínur text-
ans í því skjali sem unnið er í.
Þannig getur maður fylgst með
því hvað miðar áfram, t.d. til sjá
eða ákveða hvar undirskrift skuli
vera þótt aðeins séu 7 línur í senn
á textaskjánum.
í samanþjappaðri grein er erfitt
að gera Z88 tæmandi skil. Þess í
stað mun reynt að svara ýmsum
spurningum sem ætla mætti að
þeir vildu fá svör við sem velta
fyrir sér kaupum áfartölvu. Fyrsta
spurningin væri þá um verð.
Grunnverð Z88 er um 33 þúsund
krónur (seljandi er Hin búðin,
Garðastræti 17). Innifalið í grunn-
verði er stýrikerfið auk 12 forrita á
128 kb ROM-kubbi, 32 kb
vinnsluminni (innbyggt), íslenskir
stafir á hnöppum, skjá og út á
prentara, RS-232C, 9 pinnateng-
ill auk ístunguraufa fyrir stækkun-
areiningar. Hnappaborðið er af
fullri stærð eins og á PC tölvum.
Tölvan gengur fyrir rafhlöðum (4
stk.) eða 6 volta spennu frá
straumbreyti. Rafhlöður endast
20 klst. í samfelldri vinnslu og er
sérstök viðvörun sem á tryggja að
skipt sé um rafhlöður í tíma. Inn-
byggt samskiptaforrit sem nefnist
Import/Export er innifalið í grunn-
verði. Hægt er að flytja skjöl og
gögn frá PC tölvu og yfir í Z88 eða
öfugt. Það er gert með Import/
Export á sérstaklega einfaldan
hátt. Til þess að tengja Z88 við
PC þarf aðeins að kaupa snúru
og lítið forrit. Kostnaðurinn er um
þúsund krónur og er þá l/E notað
til að stýra millifærslu. Fullkominn
samskiptabúnaður m.a. til að
stýra ytra mótaldi kostar ásamt
kapli 3-4 þúsund krónur. Prentari
er tengdur við RS-232C með þar
til gerðu millistykki en tengillinn
getur verið fyrir rað- eða hlið-
sendingu eftir því sem við á
hverju sinni. Þetta er sama fyrir-
komulag og er á dvergtölvunni
Psion. I ritvinnslukerfinu er sér-
stakt forrit sem gerir kleift að for-
rita prentarastýringu ef hún er
ekki þegar fyrir hendi.
Þá er eðlilegt að spurt sé í
hvaða formi millifærsla gagna sé
á milli PC og Z88. Fyrst er því til
að svara að til að hægt sé að
60