Frjáls verslun - 01.07.1988, Side 70
T/EKNI
„OPEN SOFTWARE
FOUNDATION" OSF
Síðastliðið vor stofnuðu 7 þekkt
fyrirtæki með sér samtökin OSF.
Markmiðið er að þróa fullkomlega
opið hugbúnaðarumhverfi sem
innifelur aðgangskerfi (applicat-
ion interface), stækkunarmögu-
leika og nýtt stýrikerfi sem m.a.
mun lúta X/OPEN og POSIX
stöðlum til að byrja með. POSIX
er staðall að stýrikerfi (IEEE
standard 1003) sem er nátengdur
UNIX stýrikerfinu frá AT&T. Óll 7
fyrirtækin munu hafa jafnan að-
gang að þróunarferlinu.
Þessi 7 fyrirtæki, sem eru
stofnendur og kosta fyrstu áfanga
þróunarstarfsins á þessu sviði,
eru Apollo Computer, Digital,
Hewlett-Packard og IBM í Banda-
ríkjunum og Groupe Bull, Nixdorf
og Siemens í Evrópu. Samtökin
eru opin öðrum fyrirtækjum, há-
skólum og opinberum stofnunum
sem geta gerst fullgildir meðlimir.
Til að sýna alvöruna sem
bandarísku fyrirtækin leggja í
þetta samstarf hafa forstjórar
Digital, HP og IBM allir látið málið
til sín taka og rætt það á blaða-
mannafundum auk þess sem
einn af aðalforstjórum Hewlett-
Packard, John Doyle, er formað-
ur stjórnar OSF.
OSF er enn eitt skrefið sem
stigið er í átt að því markmiði að
eyða ósýnilegum múrum á milli
tölva af mismunandi tegundum.
Sívaxandi nettenging tölvukerfa
gerir það að verkum að markað-
urinn krefst tækja og hugbúnaðar
sem geta unnið í samtengingu
innan nets og á milli neta án tillits
til þess hver framleiðandi þeirra
er.
Á þessu stigi er Ijóst að OSF
mun hafa mikla þýðingu fyrir frek-
ari útbreiðslu og þróun kerfa sem
keyra undir UNIX eða samhæfð-
um stýrikerfum.
Rannsóknir og þróunarstarf
OSF mun verða á þess eigin veg-
um og í samstarfi við aðra aðila.
Samið verður við önnur fyrirtæki
um kaup á einkaleyfum, fram-
leiðslurétti og/eða búnaði. Nýja
stýrikerfið mun í grundvallaratrið-
um verða byggt á framtíðarútgáfu
af AlX-stýrikerfinu frá IBM. Rætt
hefur verið um að OSF muni
kaupa notkunarrétt á NLS (Nat-
ional Language Support) frá
Hewlett-Packard.
Til að auðvelda hugbúnaðar-
húsum markaðssetningu kerfa
fyrir nýja stýrikerfið (sem væntan-
lega fær heitið OSF) mun það
geta keyrt forrit sem skrifuð eru
fyrir System V og Berkeley-úgáf-
ur af UNIX. HP-UX (en það er
UNIX-byggt stýrikerfi frá Hewlett-
Packard) mun verða þróað áfram
af Hewlett-Packard og bendir allt
til að það muni síðar verða aðlag-
að OSF-staðlinum auk þess sem
HP 9000 tölvur af 300 og 800
gerðum gildi í OSF umhverfinu.
SAMANBURÐUR AÐGERÐARHRAÐA í RITVINNSLUKERFUM.
Vista skjal1 Ofan og niöurúr2 Fara í línu 1500 Leita og skipta3 Finna orö
Sprmt 1.0 Word Perfect 5.9 41.1 7.5 7.5 5.4 1.6 6.6 3.3 6.2
WordStar 4.0 4.4 8.1 4.7 17.1 13.8
MS Word 4.0 9.7. 49.4 * 4.6 7.0
MultiMate 1.0 21.0 * 13.4 20.6
Prófunin var ffamkvæmd á Acer 286 (8MHz), 640 K RAM. *Aögerö ekki til staöar.
1) Stærö skjals 103K. 2) 1636 línur 3) 14 tilfelli Tími sýndur í sek.
70