Frjáls verslun - 01.07.1988, Blaðsíða 73
I ÖRSTUTTU MÁLI
— í Svíþjóö er Ericsson Information
System stærsta fyrirtækið á
tölvusviðinu. Næststærst er IBM. í þriðja
sæti er Digital. Samanlögð velta 100
stærstu tölvufyrirtækjanna í Svíþjóð er
aðeins minni en velta Saab-Scania sam-
steypunnar. Þessar uþplýsingar er að
finna í úttekt sem tímaritið Affársvárlden
hefur gert og birt.
- í Bretlandi er fyrsta PS/2-tölvan
komin á markaðinn sem ekki er
framleidd af IBM. Um er að ræða
Apricot Qi sem er samhæfð IBM PS/2.
Tölvan er framleidd í Singapore en er
sett saman í Skotlandi. Apricot hefur
keypt framleiðsluleyfi af IBM fyrir
Microchannel boðrásina. Apricot Qi er
fáanleg í 5 gerðum, tvær þeirra byggja á
Intel 386SX en þrjár á 80386. Verðið er
sagt vera hagstætt en allar vélarnar
geta keyrt OS/2, UNIX eða MS-DOS.
— QMS hefur sett á markaðinn
tölvuprentara sem tekur við kóða frá
PostScript, útgáfu 49, og prentar myndir
(lit. Prentarinn er framleiddur af
Mitsubishi. Þetta er hitaprentari með
68020 gjörva og 8 Mb vinnsluminni,
innbyggðan harðdisk, SCSI boðrás, 35
leturfonta í minni og leysni uppá 300
doppur/tommu.
— IBM hefur kynnt ES/9370, nýja 9370
tölvu sem tilheyrir flokki megintölva af
gerðinni 4381 og 3090. ES/9370 getur
keyrt undir sama stýrikerfi og
megintölvurnar, þ.e. VM, DOS/VSE,
DPPX/370 og AIX/370.
- í Skandinavíu hefur verð á forritum
frá WordPerfect fyrir MS-DOS stýrikerfið
verið lækkað nýlega. Þannig hefur
WordPerfect ritvinnslukerfið fyrir MS-
DOS verið lækkað um 1000 danskar
krónur í Danmörku.
— Fyrirvaralaus verðhækkun Apple á
Macintosh tölvunni varð tilefni óánægju
meðal gesta á Macintosh Forum í
Boston fyrir nokkru. Síðar í haust mun
vera væntanleg Macintosh með
gjörvann 68030. Þá hefur það vakið
mikla athygli og vangaveltur að stjórnar-
formaður Apple, John Sculley, hefur selt
hlutabréf sín í fyrirtækinu. Ein ástæðan
fyrir því kann að vera sú að hann ætli
sér að yfirgefa fyrirtækið innan tíðar en
honum hefur ekki tekist að selja
bandarískum fyrirtækjum jafn margar
Macintosh tölvur og hann gerði ráð fyrir.
— Atari mun setja á markaðinn í
Bretlandi nú í nóvember nýja PC
handtölvu. Þessi dvergtölva er framleidd
af breska fyrirtækinu DIP.
— Alan Sugar, stjórnandi Amstrad,
hefur fundið nýtt svið þar sem hann
hyggst gera Amstrad að stórveldi á
sama hátt og hann hefur gert á öðrum
sviðum. Hér er um að ræða gervihnatta-
sjónvarþ. Amstrad hyggst gefa
almenningi kost á móttökutækjum fyrir
1/5 af því verði sem nú er sett upp fyrir
slíkan búnað. Notandi kaupir pakka af
Amstrad Fidelity. í honum er útiskermur,
móttakari og afnotaréttur sem gildir fyrir
16 sjónvarpsrásir. Lykillinn að þessu
tilboði er samningur sem Alan Sugar
hefur gert við fjölmiðlarisann Rupert
Murdoch.
BRÉFAPÓSTKRAFA
FYRIR IBM PC, XT, AT OG SAMHÆFÐAR TOLVUR
★ Nafnaskrá
★ Nafnaleit
★ Skuldaskrá
og fleira
PóilkroluupphæS I tölutlölur
102,122.80
Naln og pösllang sendanda pðsikrolusendingannnar
bbéfapöstkrafa
| mT.122.80 1
BOGGLAPÖSTKRAFA
maö Innborgun
L,--- BOGGLAPOSTKRAFA KR-- "
1 02,1 22.80 1 JÍL.-
_ I 1
* GIRÓ-SEOILL Q I
nr 679L270 (
102.122.80
iskiptaslolnun y,ölakanda
nc'vr. 1 vnsTQEAN----------1------
jón Jonsson
Gervigata 7
707 GERVIVÍK
PRENTAR:
★ Límmiða
★ Póstkröfuseðla
★ Böglapóstkröfur
★ C-Gíró seðla
★ Reikninga
★ Samlagning
SPARAR TÍMA
EINFALT I NOTKUN
VERÐ AÐEINS
KR. 4.900
Möguleiki að færa dBASE gögn yfir á PÓSTARA.
Sendum um land allt, ARI-HUGBÚNAÐUR
Sími: 91-1 92 35 (símsvari eftir lokun)
Pósthólf 7150,127 Reykjavík.
73