Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 5

Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 5
RITSTJORNARGREIN STÓRYRÐIN HITTA Þfl SJÁLFA Glannaleg yfirlýsing Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra um að menn geri fátt annað í Seðlabankanum en að naga blýanta hefur orðið tilefni til þess að Frjáls verslun leitast nú við að varpa ljósi á starfsemi Seðlabankans. Seðlabankinn er undir stöðugri gagnrýni frá stjórnmálamönnum, m.a. vegna út- þenslu. En hverjir eru það sem fela Seðla- bankanum hin ýmsu verkefni? Það eru eng- ir aðrir en stjórnmálamenn. Svo virðist sem ýmis viðfangsefni hafi lent hjá Seðlabank- anum sem ættu að vera hjá öðrum stofnun- um. I umfjöllun okkar koma fram ýmsar upp- lýsingar sem munu væntanlega koma á óvart, m.a. það að útþensla Seðlabankans hefur, þrátt fyrir allt, verið mun minni en vöxtur ríkiskerfisins! Á árunum 1961-1986 þandist ríkið út um 230% — en Seðlabankinn um 105%. Og á árunum 1980-1986 nam vöxtur ríkisins 27% en Seðlabankans 4%. Seðlabankinn er fráleitt hafinn yfir gagn- rýni. En gagnrýnin verður hjákátleg þegar hún kemur með stóryrðum frá stjórnmála- mönnum sem eru sjálfir ábyrgir fyrir ástandinu. AF EIGIN RAMMLEIK Frjáls verslun birtir að þessu sinni viðtal við Helga Vilhjálmsson sem kenndur er við Sælgætisgerðina Góu. Hann er fulltrúi þeirra harðgerðu og dug- legu Islendinga sem náð hafa að brjótast frá sárri fátækt til bjargálna. Hann hefur stund- að viðskipti í aldarfjórðung og náð sér vel á strik. Ánægjulegt er að það skuli enn vera hægt hér á landi. Helgi Vilhjálmsson virðist sjá viðfangsefn- in frá talsvert öðru sjónarhorni en margir stjórnendur og því er fróðlegt að kynnast viðhorfum hans. Hér er vakin sérstök athygli á varnaðar- orðum hans um horfur í íslenskum iðnaði. Helgi telur að verið sé að leggja iðnaðinn í rúst fyrir augunum á okkur með skefjalaus- um innflutningi án þess að spornað sé við fótum. rl Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon - RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson - AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grírnur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Frjáist framtak hf. — Túnaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasúni 31661 - RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 - STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 1.975 kr. (329 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 399 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentstofa G. Benediktssonar - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir 5

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.