Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 66

Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 66
TOLVUR Uppbygging tölvuvæðingarinnar, sú ákvörðun hvernig t.d. bókhalds- kerfi eiga að líta út, samspil þeirra við önnur upplýsingakerfi og þó fyrst og síðast það að skilja hvers konar gögn eru aðgengileg til að stjóma, eru ákvarðanir stjómenda en ekki forrit- ara. í þessu felst þar með að yfir- stjórnandinn verður að vera leiðandi í að skilgreina hvers konar gagnagrunn eigi að byggja upp innan fyrirtækisins og ekki síður í hvaða formi gögnin sem hann og aðrir stjórnendur nota til að stjóma séu framsett. Það er mikil- vægt að skilja að tölvuvæðing við- kemur upplýsingaflæði og boðmiðlun innan fyrirtækis og er þannig mjög mikilvægt stjórntæki. Alyktunin sem af þessum hugleið- ingum ber að draga er m.a. þessi: Yfirmaðurinn, höfuðstjórnandi fyrir- tækisins, verður að vera sálfræðilega hlynntur þeim heimi gagnavinnslu og upplýsingatækni sem við blasir þegar og ef hann ákveður að fjárfesta í þeirri tækni. Skilningur á stjómun upplýs- inga er ný, erfið og tímafrek reynsla fyrir flesta stjórnendur en engu að síður nauðsynleg. Að víkja sér undan því að stökkva á vagninn, að vísa upp- lýsingastjórnuninni til undirmanns er að vanrækja stóran þátt í starfinu, sem fyrr eða síðar dregur úr virkni yfirmannsins. Fyrir nútímastjómandann, sem vill stjóma atburðarrásinni í stað þess að stjómast af henni, er höfuðatriði að taka forystu við að móta afstöðu ann- arra stjórnenda þannig að þeir lagi sína stjórnunartækni að staðreynd TOSHIBA Frábærar ferðatölvur! Frelsi til að vinna á tölvu hvar sem er, er eiginleiki hinna vinsælu TOSHIBA tölva. Hvort sem þú ert heima, í skólanum eða á ferðalagi er nauðsynlegt að nýta tímann sem best. Þá er gott að geta sest niður nokkum veginn hvar sem er og unnið verkefnin sín án þess að þurfa að bíða eftir því að komast heim eða á vinnustaðinn. TOSHIBA T1000 tölvan er búin 80C88 örgjörva, 512kb minni, ROM DOS- disk, einu 720kb drifi, graf- ískum skjá (CGA samræmd- um) með 80 stöfum í 25 línum og er þar með fyllilega sambærileg við 2ja drifa PC tölvur. Hún keyrir öll vinsæl PC forrit s.s. WordPerfcct, MS- Word, MultiPlan, Excel, Open Access og að sjálfsögðu alla leiki. I TOSHIBA T1000 cr hægt að fá 768Kb minnisstækkun (fyrir sýndardisk) og er þá hægt að hafa öll helstu forrit stöðugt 1 minni. Með mótaldi getur þú komist í samband við umheiminn og skipst á upplýsingum. TOSHIBA T1000 er þó svo létt (2.9Kg) og lítil að hún tekur ekki allt plássið 1 skjalatöskunni eða skólatöskunni! MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12-108 Reykjavlk-slmi (91)-688944 \J upplýsingabyltingarinnar og nýti sér þau tæki sem þar liggja til betri stjóm- unar. I annan stað, þá má segja að þegar við höfum greint þarfirnar, skifið markmiðin og stöndum frammi fyrir vali á búnaði og framleiðendum þá snúist valið ekki einvörðungu um magnlæga þætti (quantitative) heldur líka eðfislæga (qualitative) þætti sem snerta bæði gæði vörunnar sjálfrar og síðan gæði þjónustunnar og orðspor framleiðandans eða söluaðilans. Þetta verðleikamat auðveldar okkur að gera upp á milfi þeirra framleið- enda sem valið stendur um. Til að gefa lesendum hugmynd um hvers eðlis þessir verðleikaþættir eru þá má nefna almennt álit á fram- leiðandanum; þeim vél- og hugbúnaði sem hann býður; hvað segja við- skiptavinirnir; hver er bilanatíðni búnaðar; hversu framarlega er bún- aðurinn tæknilega séð; hvernig er viðhaldsþjónustu háttað; hvernig er framleiðandinn mannaður; býður framleiðandinn upp á menntun/ kennslu fyrir viðskiptavini sína o.s.frv.. Þessi vinna við eðlislæga matið gerir okkur m.a. kleift að svara spurningum eins og þessum: Ef fram- leiðandi A er 10% dýrari kostur en B er þá réttlætanlegt að velja A umfram B? Svarið byggir á því að verðleggja verðleikamatið á A og B og ef A hefur verið raðað ofar B snýst spurningin um það hvort huglægu yfirburðir A réttlæti 10% verðmismun A í óhag. Þessu verður hver að svara fyrir sig. Að þessu sögðu skulum við snúa okkur að því að skoða beint íjárhags- legt mat á fjárfestingu í upplýsinga- væðingu eða tölvuvæðingu. FJÁRHAGSLEGT MAT Á TÖLVUKAUPUM MV. EIGNAR- HALDSTÍMA - LISTAVERÐ Á MÓTI KOSTNAÐI Á EIGNAR- HALDSTÍMA Markmið okkar í þessu mati er tvenns konar: Annars vegar það að vega og meta kosti sem uppfylla þarf- ir og skilyrði sem við setjum, eða m.ö.o. að kostir séu samanburðar- hæfir m.t.t. getu/afkasta-krafna okk- ar. Hins vegar viljum við sannfærast um að þeir kostir sem fyrir okkur eru 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.