Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 69
Kostnaður af eignarhaldi til 5 ára
Miðað við 8 notendur
1000$
180T------------------------------------
IBM 5362 Wang VS5 DEC MVII DG MV2000
Vél og hugb. \//\ Viðhald HW/SW
Kostnaöur af eignarhaldi til 5 ára
Miðað vlð 32 notendur
Vél og hugb. IZl Vlðhald HW/SW
Kostnaður af eignarhaldi til 5 ára
Miðað við 100 notendur
Véloghugb. IZ3 Viðhald HW/SW
MYND3
Sama mynd og 1 fyrir átta notend-
ur, nema að núna hefur viðhaldsverð
á vél- og hugbúnaði yfir 5 ára tímabil
verið tekið með. Umskiptin eru al-
ger. Hagkvæmasti kostur í skamm-
tímaljósi DG er nú um 20% dýrari en
hagkvæmasti kosturinn til 5 ára, sem
er IBM. DEC og Wang verða áber-
andi dýrust. Mynd 3: Kostnaður af
eignarhaldi til 5 ára mv. 8,32 og 100
notendur.
Samanteknar 3 myndir, mynd 2
endurtekin fyrir 8 notendur og sam-
bærilegri mynd fyrir 32 og 100 not-
endur bætt við, til að sýna að niður-
stöðurnar eru almennar, en ekki
bundnar við afmörkuð dæmi.
Eina megin ályktun ber að draga,
þá að ólíkir framleiðendur byggja
verðlagningu sína mjög ólíkt upp.
IBM gjaldfellir t.d. stærstan hluta
fjárfestingarinnar strax í upphafi; eða
með öðrum orðum sýnir meira af 3-5
ára fjárfestingunni strax. DEC,
Wang, og Data General byggja hins
vegar í grundvallaratriðum verðlag-
ningu sína upp með öðrum hætti.
Listaverð búnaðar í upphafi er tiltölu-
lega lágt m.v. heildaríjárfestinguna,
en miklu stærri hluti fjárfestingarinn-
ar er innheimtur í gegnum viðhald á
vél- og hugbúnaði yfir tíma. Mynd 4:
Skipting kostnaðar, þ.e. hlutfall vél-
og hugbúnaðar af heildarverði og
hlutfall viðhalds vél- og hugbúnaðar.
Átt er við 8 notendur. Sama niður-
staða fyrir fleiri notendur.
Niðurstaðan er þessi. IBM byggir
verðlagningu sína upp þannig að af
eignarhaldsverði búnaðar greiðist 80-
82% strax, en 18-20% í gegnum við-
haldsgjöld. Helstu samkeppnisaðilar
byggja sína verðlagningu upp þannig
að af eignarhaldsverði búnaðar greið-
ist 55-69% strax, en 31-45% í gegn-
um viðhaldsgjöld.
í beinu framhaldi, verður að draga
þá ályktuna að það sé algjörlega óvið-
unandi að við flókin kaup eins og
tölvukaup sé listaverð dagsins ein-
göngu skoðað; kostnaður á eignar-
haldstíma verður að vera það sem
málið snýst um.
I öðru lagi, ber að draga þá ályktun
að því stærri sneið sem viðhaldsverð
eru af heildarfjárfestingunni þeim
mun mikilvægara sé að meta áætlað
tímabil notkunar, þ.e. hversu lengi
fjárfestingin skilar hagrænu gildi. Eft-
ir því sem sá tími lengist verður matið
óhagstæðara þeim sem verðleggja
dýrar viðhald á vél- og hugbúnaði.
í síðasta lagi, ber að draga þá al-
mennu ályktun í Ijósi þess að þetta
mat á fjárhagslegum kostum er alls
ekki auðvelt, að hlutverk ráðgjafans
við tölvuvæðinguna er stórt, trúlega
vanmetið og á eftir að vaxa mikið
þegar mönnum verður betur ljóst
hvaða hagsmunir eru í húfi. Vönduð
vinnubrögð í þessum anda munu skilja
á milli þeirra sem njóta trausts og
hinna sem ekki njóta þess.
I samantekt má segja þetta:
- Upplýsingavæðingin verður að
skila sér í budduna og verður að bæta
samkeppnisstöðu fyrirtækjanna. -
Það gerir líka kröfu til skipulagðrar
leitar að tækifærum innan fyrirtækj-
anna til sjálfvirknivæðingar sem þjón-
ar þessu rnegin markmiði.
- Við mat á framleiðendum, sem val
stendur um, verður fyrst að beita
mati á eðlislægum grunni; gefa sam-
keppnisaðilum stig.
- Við íjárhagslegt mat á upplýsinga-
væðingu í kjölfarið verður að leysa
upp mismunandi verðlagningarað-
ferðir með því að greina kostnað yfir
eignarhaldstímann, á meðan búnað-
urinn skilar sínu hagræna gildi. Þetta
geta verið 3-8 ár.
69