Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 17
Hús Seðlabanka ís-
land hefur löngum
verið umdeilt og er
nokkurs konar tákn
þess styrrs sem stað-
ið hefur um bank-
ann.
árum. Undirbúningur greiðslusamninga
við erlenda aðila og fyrir erlendar lántökur
ríkissjóðs eru á hendi Seðlabankans auk
þess sem opinberum stofnunum og fyrir-
tækjum er veitt ráðgjöf varðandi slík mál.
Alþjóðadeild bankans hefur margvísleg
samskipti við erlenda banka auk þess sem
hún tekur þátt í samstarfi við sambærileg-
ar erlendar stofnanir.
Bankinn hefur með höndum gjaldeyris-
eftirlit sem þýðir að hann skal hafa yfirsýn
yfir gjaldeyrisnotkun í landinu
og annast alla skýrslugerð
þar um.
UNNIÐ UR
FRUMGÖGNUM
Annað helsta hlutverk
starfsmanna Seðlabankans er samantekt
upplýsinga og skýrslugerð úr frumgögn-
um um ástand og horfur í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Áætlanir eru gerðar um þró-
un peningamála, m.a. sem liður í árlegri
fjárfestingar- og Iánsfjáráætlun ríkis-
stjómarinnar. Þetta hlutverk tengist því
ákvæði í lögum bankans að vera stjóm-
völdum til ráðuneytis um hvaðeina sem
lýtur að efnahagsmálum þjóðarinnar.
Fjármagnsmarkaðurinn á íslandi hefur
tekið miklum breytingum á síðustu ámm
og Seðlabankanum er ætlað að vaka þar
yfir öllum hræringum. í því skyni er safnað
upplýsingum og gerðar skýrslur um fjár-
festingarlánasjóði, lífeyrissjóði og trygg-
ingafélög auk þess sem tekin eru saman
Að flestra mati er
meginhlutverk
Seðlabankans fólgið í því
að vera banki bankanna.
yfirlit um myndun og notkun fjármagns í
þjóðarbúskapnum. Náið samstarf er haft
við Þjóðhagsstofnun, fjármálaráðuneyti
og Fjárlaga- og hagsýslustofnun.
Utgáfumál em viðamikil í Seðlabanka
íslands því ekki er nóg að taka saman
fróðleik um efnahagsmál; hann verður
einnig að vera aðgengilegur fyrir þá sem
gagn eiga að hafa af slíku. í þessu skyni er
gefin út ársskýrsla á hverju ári, Fjármála-
tíðindi, sem er ítarlegt tímarit á vegum
bankans og Hagtölur mánaðar-
ins koma reglulega út. Loks
má nefna ensku útgáfuna
Economic Statistics, en
þessi gögn ásamt fjölda
annarra erlendra og inn-
lendra rita liggja frammi í
bókasafni bankans sem nú er
verið að taka í notkun í nýju bygging-
unni við Kalkofnsveg.
Loks má geta hlutverks sem Seðla-
bankinn hefur með höndum og að mati
sumra hefur ekki þótt í verkahring hans:
Bankinn hefur um langt árabil séð um
rekstur Ríkisábyrgðarsjóðs og Verðjöfii-
unarsjóðs fiskiðnaðarins en auk þess legg-
ur bankinn Iðnþróunarsjóði til húsnæði og
nokkra sérfræðiþjónustu.
ÚT FYRIR VERKSVIÐIÐ
Þeir sem gagnrýnt hafa Seðlabankann
benda á að hann sé í veigamiklum atriðum
kominn langt út fyrir verksvið sitt. M.a.
hefur bindiskylda bankans varðandi inn-
lánsstofnanir verið mönnum þymir í aug-
um svo og ákveðin binding vaxta hjá bönk-
um og sparisjóðum. Eyjólfur Konráð Jóns-
son alþingismaður hefur oft bent á þetta
atriði og sagði hann í samtali við Fijálsa
verslun að brýnt væri að bankinn léti af
slíkum afskiptum.
„Þama eiga auðvitað sök pólitíkusamir
sem hafa í gegnum árin samþykkt hver
lögin á fætur öðmm um að auka verkefni
þessarar stofnunar og fært þau frá upp-
haflegum markmiðum hennar. Seðlabank-
inn á fyrst og fremst að vera sjálfstæður
ráðgjafi ríkisstjómarinnar í fjármálum og
það verkefni ásamt eftirliti með öðrum
peningastofnunum þarf að efla og
FYRIKECKID
■ 12
HYSTSII
:: ■
SÁ RÉm FYRIR MG
ÍSbENZKA QMBBÐSSAbAN HF.
KtAPPARSTÍG 29, S. (91) - 2 64 88
17