Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 22
FORSIÐUGREIN
66 að tölu. Árið 1970 hafði þeim fjölgað
upp í 102 en þá var m.a. Framkvæmda-
sjóður hluti af bankanum og starfs-
fólki í hagfræðideild og
ýmsum þjónustustörf-
um hafði flölgað
mjög. Árið 1980
voru skráð 130
stöðugildi í
Seðlabanka en
þá höfðu bæst
við nýjar deildir
eins og alþjóða-
deild, greiðslujafn-
aðardeild, lánadeild,
tölvudeild og sérstakt starfs-
mannahald. í dag eru svo stöðugildin 141
að tölu eins og áður kom fram.
Þess má geta að á síðustu 10 árum hefur
að jafnaði bæst við 1 stöðugildi á ári hjá
Seðlabanka íslands, ef frá eru talin störf
við mötuneyti og húsvörslu, en í gamla
húsnæðinu var hlutdeild í þeim störfum
greidd Landsbanka íslands.
Af 153 starfsmönnum, sem sumir eru í
hlutastörfum, eru 87 karlar og 66 konur.
Þriðjungur starfsliðsins eru háskóla-
menntaðir sérfræðingar af ýmsu tagi.
Það er fróðlegt að bera aukningu í
mannafla Seðlabankans
saman við aukningu í
mannafla hins opin-
bera samtals. Á
árunum 1961-86
hefur stöðugild-
um hjá ríkinu
íjölgað um 230%
en hjá Seðlabank-
anum um 105% Ef
litið er á þróunina frá
1980-86 hefur orðið tæp-
lega 27% fjölgun ríkisstarfs-
manna almennt en innan við 4% fjölgun í
starfsliði Seðlabankans.
ÁFRAM VERÐUR DEILT
Eins og minnst var á í upphafi eru senni-
lega fáar ríkisstofnanir sem hafa sætt eins
^nikilli gagnrýni og Seðlabankinn í gegnum
tíðina. Sumt af þeirri gagnrýni virðist vera
skiljanlegt en annað ber greinilega keim
þeirrar afstöðu sumra stjómmálamanna
Á árunum 1961-1986 hefur störfum
hjá ríkinu fjölgað um 230% en hjá
Seðlabanka um 105%. Frá 1980-
1986 hefur ríkisstarfsmönnum
fjölgað um tæp 27% en starfsliði
Seðlabankans aðeins innan við 4%.
SdTdliUn
Softy 3 þróunarkerfi
prommarinn sem umAnunar
Leitiö
" upplýsingar hjá
FRAMÞRÓUN
GARÐASTRÆT117, SÍMI 27622.
að Seðlabankinn sé ákjósanlegur blóra-
böggull í umræðunni um útþenslu ríkis-
kerfisins.
Hér hefur verið minnst á sívaxandi
starfsemi Seðlabankans og vitanlega er
það svo með þá stofnun eins og aðrar hjá
ríkinu að bankanum hefur verið falið af
Alþingi og stjómvöldum að annast ný og
krefjandi verkefni ár frá ári. í þeim efnum
er hvorki rétt né skynsamlegt að sakast
við starfsmenn bankans því þeir sækja
umboð sitt til Alþingis og hljóta að starfa í
umboði þess.
Það sem er athyglisvert er að vöxtur
Seðlabankans er mun minni en annarra
opinberra stofnana á sama tíma og eflaust
mun minni en almennt hefur orðið í þjón-
ustugeira samfélagsins.
Hvort starfsemi bankans er með öllu
óþörf eða hvort einfalda megi ráðgjafar- og
skýrslugerðarhlutverk hans er svo allt
annað mál. Hvort þar á bæ em fram úr hófi
hysknir starfsmenn eða lélegir stjómend-
ur er enn annað mál og hvort eigi að breyta
Seðlabankahúsinu í íbúðir eða hótel er
einnig annað mál. En um þessa stofnun
eins og aðrar eiga að vera lfflegar umræð-
ur og það er m.a. hlutverk alþingismanna
að halda þeirri umræðu áfram.
Við munum fylgjast með framvindu
mála.
FRETTIR
BLAÐ SEM
VITNAÐ ER í.
22