Frjáls verslun - 01.03.1989, Blaðsíða 63
FJARMAL
HLUTHAFASTEFNAIÐNADARBANKANS
A aðalfundi Iðnaðarbankans þann 17. mars sl. ræddi Valur Valsson
bankastjóri um hluthafastefnu bankans sem tekin er til skoðunar á hverju
ári. Ræða Vals vakti mikla athygli fundarmanna og er birt hér lítið eitt stytt
með leyfi höfundar.
Það er meginatriði í markmið-
um Iðnaðarbankans, að hluta-
bréf hans séu á hverjum tíma
eftirsóknarverður fjárfestingar-
kostur. í því sambandi teljum
við þýðingarmikið að bankinn
hafi ákveðna hluthafastefnu og
að á aðalfundi hverju sinni sé
um þessi mál fjallað og góð grein
gerð fyrir stefnu bankans. Þessi
greinargerð hefur komið í minn
hlut í ár.
RAUNÁVÖXTUN 16.7%
í upphafi árs 1988 var bókfært eigið fé
bankans samtals á 691.3 milljónir króna.
Innra virði, þ.e.a.s. heildar eigið fé deilt
með hlutafénu var þá 1,83. í lok ársins var
eigið fé tæplega 950 milljónir króna og var
innra virðið þá 1,95. Eigið fé eykst milli ára
um 258 milljónir króna eða 37,4%. í þessu
sambandi er nauðsynlegt að hafa í huga að
hlutafé var aukið á síðasta ári svo og að þá
var greiddur arður til hluthafa sem nam 36
millj.kr. Að teknu tilliti til þessa er raun-
ávöxtun eigin fjár árið 1988 16,7%, og er
þá miðað við hækkun lánskjaravísitölu.
Árið 1987 varð raunávöxtun eigin fjár
bankans hins vegar 17% eða ívið hærri. Að
sjálfsögðu hefur aukin skattgreiðsla svo
og hækkun framlags í afskriftareikning út-
lána, sem gerð hefur verið grein fyrir á
þessum fundi, áhrif á þróun eigin fjárins,
því minna verður til skiptanna. Þessi tvö
atriði eru megin skýring þess að arðsemi
eigin flárins hefur farið ívið minnkandi síð-
ustu tvö árin en þrátt fyrir það tel ég
hluthafa geta vel við unað, því 16,7%
raunávöxtun er í sjálfu sér ágætis arð-
semi. Vafasamt er að hluthafar hefðu al-
mennt getað ávaxtað fé sitt betur á annan
hátt.
Undanfarin ár hefur tekjuafgangi bank-
ans verið þannig varið, að áður en til arð-
greiðslu kom, voru 10% af hagnaði lögð í
varasjóð bankans, í samræmi við 108.
grein laga um hlutafélög. Nú hefur verið
tekin upp sú regla, að endurmeta varasjóð
á sama hátt og hlutaféð er endurmetið
með jöfnunarhlutabréfum. Þannig hefur
ákvæðum hlutafélagalaga verið fullnægt.
Með hliðsjón af þessu er lagt til, að tekju-
afgangur samkvæmt rekstrarreikningi,
137 milljónir króna, verði allur færður til
hækkunar á óráðstöfuðu eigin fé bankans.
SKATTAHÆKKANIR
Rétt fyrir síðustu áramót gerði Alþingi
margar breytingar á lögum um tekju- og
eignarskatta. Margir ykkar, hluthafar
góðir, þekkið þær breytingar af eigin
raun, svo ekki er ástæða til að fara ítarlega
út í þær hér. Þó er vert að minna á að með
þessum breytingum voru meðal annars
afskriftir almennt lækkaðar og skattbyrði
fyrirtækja á þann hátt aukin. Þá má nefna
að heimild til fjárfestingarsjóðstillags var
lækkuð um helming og tekjuskattur félaga
hækkaður úr 48% í 50%. Allar þessar
breytingar eru látnar hafa áhrif á rekstrar-
árið 1988 jafhvel þótt þær hafi ekki verið
samþykktar fyrr en á næstsíðasta degi
ársins.
En ég vil gera hér sérstaklega að um-
ræðuefni þá breytingu sem gerð var á
lögunum um eignarskatt og hvaða áhrif sú
breyting kann að hafa á útgáfu jöfnunar-
hlutabréfa.
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa hjá hluta-
félögum flyst eignarskattsskyldan frá fé-
lögunum til hluthafanna, því skatturinn er
hjá félögum lagður á eigið fé að frádregnu
hlutafénu. Á undanförnum árum hefur
eignarskattur félaga og einstaklinga verið
hinn sami. Því hefur það ekki haft áhrif á
skattbyrðina í heild hvort jöfnunarhluta-
bréf voru gefin út eða ekki og þar sem
enginn munur var á eignarskatti einstak-
linga eða fyrirtækja hefur jöfnunarbréfaút-
63